Svona er þetta alla daga hjá okkur ríkisstarfsmönnum. Það er bara svo rólegt að gera hjá okkur.
11/23/2006
11/10/2006
HNAKKUS: Þú veist að þú ert rasisti þegar....
Sæl öll
Jæja, blessuð útlendingaumræðan orðin "fordómalaus". Frjálslyndi flokkurinn virðist ætla að bjarga sínu vitagagnslausa skinni með því að raka inn atkvæðum lúðablesa þessa samfélags, sem virðast því miður vera ansi margir.
Ég hrasaði um neðangreinda færslu hjá einhverjum ókunnugum manni. Mér finnst hún varpa skemmtilegu ljósi á allt blaðrið.
HNAKKUS: Þú veist að þú ert rasisti þegar....
Mbk
Bragi

11/08/2006
11/06/2006
Pabbi fastur í Boston
Við María erum búnar að vera einar í kotinu í viku og finnst okkur tími til kominn að fá pabba aftur heim frá Ameríkunni. Hann átti að koma heim í morgun en vegna óveðursins hér á Íslandi var fluginu aflýst og er hann ekki væntalegur heim fyrr en í fyrramálið. Okkur hlakkar mikið til að fá hann heim! Kannski líka best að hann verði ekki lengur þar, því að heyrst hefur að hann sé dottinn í bjórinn :)
Við mæðgur erum búnar að hafa nóg fyrir stafni undanfarna daga, verið duglegar að fara í heimsóknir og fengið heimsóknir, sem er alltaf gaman. Við fórum í afmæli til ömmu Maju í gær og fengum fullt af kræsingum eins og venja er þar á bæ. María fór í kjól í tilefni dagsins og var rosalega fín, en hún var ekki lengi í þeim kjól því hún kúkaði vel upp á bak :) En því betur fer var mamma með auka dress á stelpuna svo að það gerði ekki mikið til, svo var Svava Rós frænka svo dugleg að hjálpa mömmu að skipta á stelpunni.
María fór í 9 vikna skoðun í morgun og er orðin 6,2 kg og 61,5 cm og telst það bara nokkuð gott.
Það eru komnar inn nokkrar nýjar myndir, setjum inn fleiri þegar pabbi kemur heim með myndavélina.
Bless í bili!
Eygló og María

10/31/2006
San Francisco Shopping Frenzy
HÚÚÚHAAA. Ég er kominn heim á hótelherbergi, búinn að éta ætla að fljótlega að leggja mig. Klukkan er rétt rúmlega sjö og ég er úrvinda. Varði deginum í dag við að versla. Það tók mig smá stund að komast í gang, en mér tókst svo einhvern veginn að brjóta ísinn og er búinn að hlaupa móður og másandi á milli verslana í fleiri klukkutíma síðan þá. Er þó ekki búinn með nærri allt. Á til dæmis enn eftir að fara í útivistarverslun. Þau ykkar sem þekkja mig vita að heimsókn í slíkar verslanir eiga það til að taka tíma.
Ég settist inn á bar sem er beint á móti hótelinu mínu um fjögur leitið í dag. Ég, eins og allir sannir karlmenn, varð að brjóta verslunaræðið upp með smá drykkju. Fékk mér tvo bjóra og spjallaði í smá stund við tvo ameríkanska orgínala. Annar þeirra vildi helst af öllu ræða hversu viljugar íslenskar konur væru til að flytja til Ameríku. Hann langaði nefnilega að plögga sig á netið og ná sér í eina. Mannvitsbrekkur þar á ferð.
Fékk yndislegann tölvupóst frá Maríu áðan. Varð klökkur af heimþrá. Ég var líka mjög stoltur af því hvað hún er orðinn dugleg að skrifa tölvupósta, ekki nema átta vikna gömul.
Á morgun hefst námskeiðið, sem mér skilst að sé intenívt. Ég ætla því snemma í háttinn í kvöld.

10/29/2006
Frá flugvellinum
Jæja, ég er lagður af stað til San Francisco þar sem ég ætla að dvelja næstu 6 daga. Er búinn að ráfa um fríhöfnina (sem er orðin allt öðruvísi en var) í leit að lesefni. Mér er tjáð að bókabúð sé að finna við hlið 6. Ætla að kaupa klámblað.Það verður skrítið að vera frá Eygló og Maríu í svona langann tíma. Ein vika er í sjálfu sér stuttur tími, en ég er búinn að mikla þessa tilteknu viku töluvert fyrir mér. María braggast svo hratt og breytist á hverjum degi. Í gærkvöldi lærði hún að syngja til dæmis. Við feðginin sungum "Vertu til er vorið kallar á þig" hátt og snjallt. Ég sá um textann og hún sá um skrækina. Laglínuna sá enginn um, enda þarf enga helvítis laglínu.
Ég vona bara að hún muni eftir mér þegar ég kem aftur. Vona líka að Eygló muni eftir mér.
Annars er 10 mánaða bindindi rofið hér með. Var að klára fyrsta bjórinn í 10 mánuði. Sjáum til hvort ég held áfram í San Fran.
Eygló, ég elska þig
Bragi
...ok, ég ætla ekki að kaupa klámblað...
10/25/2006
Hilde frænka átti afmæli í gær
Ég vil óska Hilde frænku innilega til hamingju með 26 ára afmælið í gær. Mamma og pabbi segja að Hilde sé ofsalega góð og skemmtileg frænka og ég hlakka mikið til að hitta hana um jólin. Þá ætla ég að knúsa hana og klemma til að bæta upp fyrir að hafa ekki verið viðstödd á afmælinu hennar í gær.
10/18/2006
Halló!

Okkur finnst kominn tími á að láta aðeins heyra frá okkur, svoldið langt síðan síðast. María dafnar vel, fór í 6 vikna skoðun í seinustu viku og var þá orðin 5,5 kg og 59cm og voru læknirinn og hjúkkan mjög ánægð með stelpuna. Hún dafnar svo vel að foreldrarnir verða að hafa sig alla við að nota öll fötin sem hún á, áður en þau verða of lítil.
Í gær þá fórum við mæðgur í mömmuhitting, þar voru samankomnar hjúkkurnar af hjartadeildinni. Það má með sanni segja að þetta sé frjósamur vinnustaður því börnin eru samtals orðin 12 á árinu og von er á tveim í viðbót á næstu dögum. Það var mjög gaman að hitta allar mömmurnar og börnin þeirra og það var auðvitað mikið fjör. Við gleymdum því miður myndavélinni heima og gátum því ekki tekið myndir af barnahópnum, gerum það bara næst..
María eignaðist lítinn frænda í morgun, Ingunn frænka átti strákinn sinn tveim vikum fyrir tímann. Við fáum vonandi að sjá hann sem fyrst, María er alla vega orðin mjög spennt yfir því að vera orðin stóra frænka ;)
Það eru komnar nýjar myndir af dömunni inn á myndasíðuna, þeir sem eru ekki ennþá komnir með lykilorð inn á síðuna endilega sendið okkur póst og við látum ykkur fá það :)
Bless í bili,
Eygló og María
10/02/2006
Mánaðargömul

Já í dag er hún María mánaðargömul, ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt!
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Hábergsbúum.. Pabbi fór aftur að vinna, tveim vikum eftir að stelpan fæddist og erum við sammála um það að tvær vikur séu allt of stuttur tími svona fyrst( vitum það næst.. ) Amma og afi komu frá Noregi og voru hjá okkur í 10 daga, þá var sko gaman. María var farin að venja sig á að taka morgunlúr á bumbunni á afa sínum og saknar hún þess óskaplega mikið núna. En hún ætlar að athuga hvort hún fái ekki að lúra hjá honum þegar við komum til Noregs um jólin.
María var skírð laugardaginn 23. September, ákváðum við að drífa í því fyrst amma og afi voru á landinu. Athöfnin og veislan fór fram hjá ömmu og afa í Keilufellinu og voru nánustu ættingjar viðstaddir. Séra Bolli Pétur Bollason skírði dömuna og hélt amma Guðrún á henni. María var mjög stillt og prúð við athöfnina, lét aðeins vita af þvi að hún vildi dudduna sína og tók gleði sína á ný þegar hún fékk sínu fram. María sofnaði svo eftir athöfnina í skírnarkjólnum, sem er víst mjög mikilvægt samkvæmt ömmunum :) Þetta var mjög góður dagur.
María hefur verið dugleg að fara út að ganga með mömmu sinni undanfarna daga, enda ætlar hún að verða útivistargarpur eins og pabbi sinn :) Henni finnst hvergi betra að sofa en í vagninum og tekur lengstu lúrana sína þar.
Það nýjasta nýtt hjá Maríu er leikteppið sem hún fékk að gjöf um daginn, á því er spegill sem henni finnst gaman að horfa í og skoða sjálfa sig-þá er sko brosað og hjalað :)
Í gær skruppum við fjölskyldan út úr bænum og fórum í kaffi til Magga og Rannveigar í bústaðinn í Grímsnesinu, það var mjög notalegt og alveg æðislegt veður. Takk fyrir okkur!
Eygló og María
9/30/2006
9/12/2006
Fyrstu dagarnir
Hæ allir!
Takk kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar, átti að skila sérstakri kveðju frá Maríu :)
Það er ekki hægt að segja annað en að það gangi allt vel hjá okkur hérna í Háberginu, við foreldrarnir erum að læra inn á Maríu og hún inn á okkur.
María fór í fyrsta baðið sitt um daginn og fannst það alveg frábært, var mjög róleg og góð en fannst ekkert gaman að fara upp úr-þá var sko látið heyra í sér...
Við erum búin að fara tvisvar sinnum með hana í heimsókn til ömmu Maju og afa Tomma og var það rosa stuð.
María er mjög tæknivædd ung dama og hefur spjallað við ömmu og afa í Noregi á skype nokkrum sinnum og finnst henni mjög gaman að láta þau dást að sér. Amma og afi eru svo væntanleg frá Noregi á fimmtudaginn, þá verður gaman :)
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, setjum sennilega inn fleiri myndir í dag fyrir áhugasama.
Eygló

9/04/2006
Þriggja daga gömul
Þetta er lífið...
María er orðin þriggja daga gömul. Hún er búin að vera heima í Háberginu í tvær nætur og allt gengur vel. María sefur mikið, eins og öll nýfædd börn en vaknar til að drekka hjá mömmu sinni af áfergju á rúmlega klukkutíma fresti að jafnaði. Yfir hánóttina er hún þó hvað hressust og sefur minna. Sem betur fer sofnar hún þó undir morgun og við foreldrarnir höfum fengið að sofa með henni frá um fimm á nóttunni til ellefu á morgnanna síðustu tvær nætur. Svefnleysið er því ekki alvarlegt.

Það er yndislegt að fylgjast með því hvað María dafnar hratt. Í dag bar meira á því að hún opnaði augun og skoðaði heimin í kringum sig . Við tvö áttum nokkrar frábærar stundir þar sem við horfðumst í augu í nokkrar mínútur, ég dáðist að fegurð hennar og hún furðaði sig á einkennilegu útliti mínu.
Lungun í Maríu er í góðu lagi. Eygló skrapp út í u.þ.b 10 mínútur í dag. Ég hélt það yrði nú lítið mál að vera einn heima með Maríu. Það liðu ekki nema tvær mínútur þar til hún áttaði sig á því að mamma var ekki heima. Það heyrðist vel að "Ó María mig langar heim" raulað falskri röddu svalar ekki neinni af frumþörfum þriggja daga gamallar dömu.
Gunni bróðir segir að það besta sem faðir getur gert fyrir börnin sín er að elska móðir þeirra. Ég tek mark á því og ætla að leggja mig fram við að sýna það í verki.

9/02/2006
María er komin

María er komin í heiminn!. Klukkan 00:04 annan september kom María í heiminn í fremur stuttri fæðingu. Við mættum á fæðingadeild LSH klukkan 21:20. Tæpum þrem tímum síðar lá María við brjóst mömmu sinnar með pabba sinn háskælandi yfir sér.
Ég er hamingjusamasti maður í heimi, Eygló er fallegasta kona í heimi og María E. Bragadóttir er yndislegasta vera sem ég hef augum litið.
Mbk
Bragi
8/30/2006
8/29/2006
8/28/2006
8/27/2006
27. ágúst!

Þá er dagurinn runninn upp, það er að segja áætlaður fæðingardagur litlunnar. Hún virðist ekki ætla að koma í heiminn í dag, verður þá alla vega að vera mjög snögg að því ef hún ætlar að koma fyrir miðnætti. Var að lesa að líkurnar á því að fæðing fari af stað á morgun eru um10% og að fæðing fari af stað á næstu fjórum dögum er um 40% og 65% á næstu sjö dögum. Seinustu dagar eru búnir að vera svolítið skrítnir, við erum í rauninnni alltaf í viðbragðsstöðu um að eitthvað fari að gerast. En þessi tími sem maður getur búist við að fæðing fari af stað spannar mánuð þannig að það þýðir víst lítið að sitja bara heima og bíða. Við vitum alla vega að litla verður komin í heiminn í seinasta lagi eftir 2 vikur og vonum við að sjálfsögðu að hún fari að láta sjá sig sem fyrst því við erum orðin mjög spennt að fá hana.
Eygló
8/25/2006
Bíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)