10/31/2006

San Francisco Shopping Frenzy

HÚÚÚHAAA. Ég er kominn heim á hótelherbergi, búinn að éta ætla að fljótlega að leggja mig. Klukkan er rétt rúmlega sjö og ég er úrvinda. Varði deginum í dag við að versla. Það tók mig smá stund að komast í gang, en mér tókst svo einhvern veginn að brjóta ísinn og er búinn að hlaupa móður og másandi á milli verslana í fleiri klukkutíma síðan þá. Er þó ekki búinn með nærri allt. Á til dæmis enn eftir að fara í útivistarverslun. Þau ykkar sem þekkja mig vita að heimsókn í slíkar verslanir eiga það til að taka tíma.

Ég settist inn á bar sem er beint á móti hótelinu mínu um fjögur leitið í dag. Ég, eins og allir sannir karlmenn, varð að brjóta verslunaræðið upp með smá drykkju. Fékk mér tvo bjóra og spjallaði í smá stund við tvo ameríkanska orgínala. Annar þeirra vildi helst af öllu ræða hversu viljugar íslenskar konur væru til að flytja til Ameríku. Hann langaði nefnilega að plögga sig á netið og ná sér í eina. Mannvitsbrekkur þar á ferð.

Fékk yndislegann tölvupóst frá Maríu áðan. Varð klökkur af heimþrá. Ég var líka mjög stoltur af því hvað hún er orðinn dugleg að skrifa tölvupósta, ekki nema átta vikna gömul.

Á morgun hefst námskeiðið, sem mér skilst að sé intenívt. Ég ætla því snemma í háttinn í kvöld.

10/29/2006

Frá flugvellinum

Jæja, ég er lagður af stað til San Francisco þar sem ég ætla að dvelja næstu 6 daga. Er búinn að ráfa um fríhöfnina (sem er orðin allt öðruvísi en var) í leit að lesefni. Mér er tjáð að bókabúð sé að finna við hlið 6. Ætla að kaupa klámblað.

Það verður skrítið að vera frá Eygló og Maríu í svona langann tíma. Ein vika er í sjálfu sér stuttur tími, en ég er búinn að mikla þessa tilteknu viku töluvert fyrir mér. María braggast svo hratt og breytist á hverjum degi. Í gærkvöldi lærði hún að syngja til dæmis. Við feðginin sungum "Vertu til er vorið kallar á þig" hátt og snjallt. Ég sá um textann og hún sá um skrækina. Laglínuna sá enginn um, enda þarf enga helvítis laglínu.

Ég vona bara að hún muni eftir mér þegar ég kem aftur. Vona líka að Eygló muni eftir mér.

Annars er 10 mánaða bindindi rofið hér með. Var að klára fyrsta bjórinn í 10 mánuði. Sjáum til hvort ég held áfram í San Fran.

Eygló, ég elska þig
Bragi





...ok, ég ætla ekki að kaupa klámblað...

10/25/2006

Hilde frænka átti afmæli í gær

Ég vil óska Hilde frænku innilega til hamingju með 26 ára afmælið í gær. Mamma og pabbi segja að Hilde sé ofsalega góð og skemmtileg frænka og ég hlakka mikið til að hitta hana um jólin. Þá ætla ég að knúsa hana og klemma til að bæta upp fyrir að hafa ekki verið viðstödd á afmælinu hennar í gær.

Hér er Hilde frænka í göngutúr með Gunnari frænda og Gunnari stórafrænda.

Elsku Hilde, til hamingju með daginn.
María

P.S. Mamma og pabbi biðja líka að heilsa. Þau eru mjög skrítin.

10/18/2006

Halló!


Okkur finnst kominn tími á að láta aðeins heyra frá okkur, svoldið langt síðan síðast. María dafnar vel, fór í 6 vikna skoðun í seinustu viku og var þá orðin 5,5 kg og 59cm og voru læknirinn og hjúkkan mjög ánægð með stelpuna. Hún dafnar svo vel að foreldrarnir verða að hafa sig alla við að nota öll fötin sem hún á, áður en þau verða of lítil.
Í gær þá fórum við mæðgur í mömmuhitting, þar voru samankomnar hjúkkurnar af hjartadeildinni. Það má með sanni segja að þetta sé frjósamur vinnustaður því börnin eru samtals orðin 12 á árinu og von er á tveim í viðbót á næstu dögum. Það var mjög gaman að hitta allar mömmurnar og börnin þeirra og það var auðvitað mikið fjör. Við gleymdum því miður myndavélinni heima og gátum því ekki tekið myndir af barnahópnum, gerum það bara næst..
María eignaðist lítinn frænda í morgun, Ingunn frænka átti strákinn sinn tveim vikum fyrir tímann. Við fáum vonandi að sjá hann sem fyrst, María er alla vega orðin mjög spennt yfir því að vera orðin stóra frænka ;)
Það eru komnar nýjar myndir af dömunni inn á myndasíðuna, þeir sem eru ekki ennþá komnir með lykilorð inn á síðuna endilega sendið okkur póst og við látum ykkur fá það :)
Bless í bili,
Eygló og María

10/02/2006

Mánaðargömul















Já í dag er hún María mánaðargömul, ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt!
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Hábergsbúum.. Pabbi fór aftur að vinna, tveim vikum eftir að stelpan fæddist og erum við sammála um það að tvær vikur séu allt of stuttur tími svona fyrst( vitum það næst.. ) Amma og afi komu frá Noregi og voru hjá okkur í 10 daga, þá var sko gaman. María var farin að venja sig á að taka morgunlúr á bumbunni á afa sínum og saknar hún þess óskaplega mikið núna. En hún ætlar að athuga hvort hún fái ekki að lúra hjá honum þegar við komum til Noregs um jólin.
María var skírð laugardaginn 23. September, ákváðum við að drífa í því fyrst amma og afi voru á landinu. Athöfnin og veislan fór fram hjá ömmu og afa í Keilufellinu og voru nánustu ættingjar viðstaddir. Séra Bolli Pétur Bollason skírði dömuna og hélt amma Guðrún á henni. María var mjög stillt og prúð við athöfnina, lét aðeins vita af þvi að hún vildi dudduna sína og tók gleði sína á ný þegar hún fékk sínu fram. María sofnaði svo eftir athöfnina í skírnarkjólnum, sem er víst mjög mikilvægt samkvæmt ömmunum :) Þetta var mjög góður dagur.
María hefur verið dugleg að fara út að ganga með mömmu sinni undanfarna daga, enda ætlar hún að verða útivistargarpur eins og pabbi sinn :) Henni finnst hvergi betra að sofa en í vagninum og tekur lengstu lúrana sína þar.
Það nýjasta nýtt hjá Maríu er leikteppið sem hún fékk að gjöf um daginn, á því er spegill sem henni finnst gaman að horfa í og skoða sjálfa sig-þá er sko brosað og hjalað :)
Í gær skruppum við fjölskyldan út úr bænum og fórum í kaffi til Magga og Rannveigar í bústaðinn í Grímsnesinu, það var mjög notalegt og alveg æðislegt veður. Takk fyrir okkur!

Eygló og María