10/29/2006

Frá flugvellinum

Jæja, ég er lagður af stað til San Francisco þar sem ég ætla að dvelja næstu 6 daga. Er búinn að ráfa um fríhöfnina (sem er orðin allt öðruvísi en var) í leit að lesefni. Mér er tjáð að bókabúð sé að finna við hlið 6. Ætla að kaupa klámblað.

Það verður skrítið að vera frá Eygló og Maríu í svona langann tíma. Ein vika er í sjálfu sér stuttur tími, en ég er búinn að mikla þessa tilteknu viku töluvert fyrir mér. María braggast svo hratt og breytist á hverjum degi. Í gærkvöldi lærði hún að syngja til dæmis. Við feðginin sungum "Vertu til er vorið kallar á þig" hátt og snjallt. Ég sá um textann og hún sá um skrækina. Laglínuna sá enginn um, enda þarf enga helvítis laglínu.

Ég vona bara að hún muni eftir mér þegar ég kem aftur. Vona líka að Eygló muni eftir mér.

Annars er 10 mánaða bindindi rofið hér með. Var að klára fyrsta bjórinn í 10 mánuði. Sjáum til hvort ég held áfram í San Fran.

Eygló, ég elska þig
Bragi





...ok, ég ætla ekki að kaupa klámblað...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ætli ég sé líka búin með bjór, ég sé nefnilega þrefalt (allavega þessa færslu hihi) ;)
Bragi, varðstu fullur af þessum eina bjór eða hvað???

Nafnlaus sagði...

Sussu svei Bragi Það hlaut að koma að því Til hamingju :)
Skál,
Ásgarðsbúarnir