4/26/2007

Gleðilegt sumar!

Það hefur lítið verið sett inn af myndum undanfarið vegna tæknilegra örðugleika... En vegna óska aðdáenda Maríu kemur hér smá myndasyrpa :) Er dugleg að æfa sig í hoppurólunni


Alltaf jafn gaman í sundi


Á leiðinni í bað


Gott að grípa í bók í baði


Amma gaf henni Liverpool búning, frændum hennar til mikillar gleði, veit ekki með pabbann ;)


Á leið í háttinn


Að leika með nýja dótið, flottur hattur :)

4/07/2007

Eygló í bíó

og ég sit hér á nærbuxum og hlíra. Ætla að éta hótelpakkningu af Hraunbitum, drekka svo einn bjór og fara að sofa. Skokka á Esjuna í fyrramálið. Mæting klukkan 10:15 við Esjurætur.

Eftir páska tekur rútínan aftur við.

4/06/2007

Það er flugmaður í stofunni

Sæl

Fjölskyldan í Hábergi 5 heldur sína fyrstu páska saman eftir að María kom í heiminn. Ég er í páskafríi og lífið er yndislegt. Eygló gaf mér bæjarleyfi á miðvikudagskvöldið. Goggi kom í heimsókn og við drukkum bjór og vín og skelltum okkur svo í bæinn. Ég óð náttúrulega í kellingum. Gamli ekki búinn að missa sjarmann þótt mest af hárinu sé farið fyrir lítið.

María er hin hressasta. Hún situr í sófanum hér við hliðina á mér og hvetur landsliðið til dáða gegn pólverjum. Hún er með flugmannagleraugu eins og myndin sýnir.

Við óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegra páska. Gangið hægt um gleðinnar dyr.

Bragi, Eygló og María

4/04/2007

Bumbukeppninni lokið - sukk og svínarí

Heil og sæl

Þá er 12 vikna bumbukeppninni í vinnunni lokið. Lokavigtun var framkvæmd í morgun. Niðurstöðurnar voru ágætar. Lenti í öðru sæti.
Eins og myndin hér að ofan sýnir léttist ég um 10,6 kíló, sem er 10,32% af upphafsþyngd minni (4. janúar). Næsti maður fyrir ofan léttist um 800 grömmum meira en ég og um 10,88% af sinni upphafsþyngd. Það skildu því aðeins 0,56 prósentustig fyrsta og annað sæti að. Skítt, en ce' la vie.

Í tilefni þess að keppninni er lokið er alsherjar sukk í dag. Ég og fleiri fengum okkur sælgæti í morgunmat strax eftir vigtun. Toblerone, Draum og annað gott.

Bragi

4/01/2007

Saga Dís frænka


Heil og sæl allir saman!

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarna daga. Ég fékk heimsókn frá Noregi, Hulda og Saga Dís frænkur mínar komu og voru hjá okkur í viku, það var ekkert smá gaman. Saga Dís er orðin svo stór að ég verð að fara að passa mig. Við spjölluðum svolítið saman og gerðum saman bakæfingar, ég sýndi henni hvernig á að gera þetta almennilega :)
Ég er orðin mjög góð í því að sitja sjálf og svo er ég líka farin að sofa alla nóttina, mamma og pabbi eru rosalega ánægð með það :)
Í dag er fyrsti apríl og á Eva Dögg vinkona mín afmæli, Til hamingju með afmælið Eva mín! Knúsa þig á eftir :)
María