Það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarna daga. Ég fékk heimsókn frá Noregi, Hulda og Saga Dís frænkur mínar komu og voru hjá okkur í viku, það var ekkert smá gaman. Saga Dís er orðin svo stór að ég verð að fara að passa mig. Við spjölluðum svolítið saman og gerðum saman bakæfingar, ég sýndi henni hvernig á að gera þetta almennilega :)
Ég er orðin mjög góð í því að sitja sjálf og svo er ég líka farin að sofa alla nóttina, mamma og pabbi eru rosalega ánægð með það :)
Í dag er fyrsti apríl og á Eva Dögg vinkona mín afmæli, Til hamingju með afmælið Eva mín! Knúsa þig á eftir :)
María
3 ummæli:
Hæ skvísa Takk fyrir komuna í afmælið Varst aðalpæjan einsog alltaf :) Og til hamingju með afmælið á morgun ;)
Kv.Eva
Afi Gunnar sendi mér þessa frábæru mynd af þessum yndislegu frænku mínum.
Kveðja Tedda frænka
Ferlega eru þær sætar saman, frænkurnar :)
Skrifa ummæli