12/26/2006

Annar í jólum

Jæja....jóhátíðin búin að ná hámarki sínu og fjarar nú út í rólegheitum. Ég er búinn að éta eins og svín undanfarna daga og hef nú í hyggju að snúa aftur að fyrri háttum með vogina á lofti. Verst er að sykurfíknin er vöknuð á ný. Hana þarf að bæla.

Aðfangadagskvöld gekk vel fyrir sig í ár. Búið var að safna saman allri nánustu fjölskyldu á Elgveien 11 hjá Mömmu og Pabba. Fjölskyldan hefur stækkað um fjóra síðan á síðustu jólum. Sigbjörn og Hulda systir eru búin að vera saman í nákvæmlega eitt ár í dag, Gunnar jr fæddist í febrúar, María fæddist í september og Saga Dís nú í desember. Við erum því orðin 11 í allt:

Mamma og Pabbi
Bragi, Eygló og María
Hulda, Sigbjörn og Saga Dís
Gunnar, Hilde og Gunnar

Þegar allt þetta fólk kemur saman á jólunum myndast gríðarlegt magn af jólagjöfum, svo gríðarlegt að annað eins hefur ekki sést síðan jólasveinarnir hófu starfsemi sína i Esjunni.

María er búin að hafa það gott um jólin og við foreldrarnir líka.

12/23/2006

Heia Norge

Suður Noregur er ekki jólalegur. Hér er 10 stiga hiti, þoka og rigningarúði. Sem sagt, íslenskt sumarveður eins og það gerist best. Við erum í góðu yfirlæti hjá Ömmu Guðrúnu og Afa Gunnari eins og er. Jólaundirbúningurinn er að smella, enda komin Þoddláksmessa og ekki seinna vænna.

Hersingin frá Stavanger kemur í dag (Hulda systir, Sigbjörn og Saga Dís og Gunni bróðir, Hilde og Gunnar IIII). það verður því þröngt á þingi hér næstu tvo daga. Allt fullt af grenjandi smábörnum, brjóstagefandi mæðrum, stoltum feðrum og ringluðum ömmum og öfum sem vita ekki við hvaða barnabarn þau eiga að hjala næst.

Uppúr fimm leggst skötufnykur yfir hverfið. Amma neitar að nýta góða veðrið og elda skötuna úti á grilli. Henni finnst það ekki jólalegt. Alltaf sama smámunasemin hér.

Jólapakkafjallið heldur áfram að stækka. Það á eftir að taka einn stórann vaxtakipp í dag þegar stavangursbúarnir koma. Gunni bróðir spáir því að metið muni falla í ár. Það er líklegt. Húrra. Það góða við það er að gjafir til smábarna eru í raun gjafir til foreldranna. HúrraHúrra.

Jólakveðjur frá Elgveien 11, Egersund, Noregi

12/15/2006

Saga Dís komin í heiminn!


Við eignuðumst litla frænku í nótt-Húrra!!!
Sú stutta hefur fengið hið fallega nafn Saga Dís, hún er 15 merkur og 52cm. Velkomin í heiminn Saga Dís og innilega til hamingju Hulda og Sigbjörn.
Hlökkum til að hitta ykkur um jólin!

12/11/2006

HóHóHó!


Okkur finnst komin tími til þess að láta aðeins heyra í okkur, við höfum ekki alveg verið að standa okkur í blogginu en við María erum sammála um það að áramótaheitið í ár verður að blogga oftar. Af okkur er það að frétta að við erum á fullu í jólaundirbúningi, búin að skreyta heimilið, reyndar enginn bakstur þetta árið en bætum úr því á næsta ári..... Erum komin langt með jólagjafakaupin þannig að við erum í góðum gír. Við förum til Noregs eftir rúmlega viku og erum við orðin spennt að komast þangað, sérstaklega þar sem að litla stelpan hennar Huldu verður að öllum líkindum fædd þá, nýjustu fréttir eru þær að Hulda er komin með hríðir og hafa þær staðið í sólarhring-Spennandi!!
María skellti sér í fyrsta skipti í ungbarnasund á laugardaginn og skemmti hún sér konunglega, var ekkert smá dugleg. Var alveg óhrædd en svolítið hissa á þessu öllu saman. Við tókum nokkrar myndir af sunddrottningunni og verða þær settar á myndasíðuna sem fyrst, við gátum reyndar ekki tekið eins margar myndir og við vildum því myndavélin varð batteríslaus, tökum bara fleiri næst. Já nýjar og ferskar myndir verða settar inn við fyrsta tækifæri, en tæknin hefur eitthvað verið að stríða okkur í kvöld...
En þangað til næst, hafið það gott!

Eygló

testingtesting beta blogger