Suður Noregur er ekki jólalegur. Hér er 10 stiga hiti, þoka og rigningarúði. Sem sagt, íslenskt sumarveður eins og það gerist best. Við erum í góðu yfirlæti hjá Ömmu Guðrúnu og Afa Gunnari eins og er. Jólaundirbúningurinn er að smella, enda komin Þoddláksmessa og ekki seinna vænna.
Hersingin frá Stavanger kemur í dag (Hulda systir, Sigbjörn og Saga Dís og Gunni bróðir, Hilde og Gunnar IIII). það verður því þröngt á þingi hér næstu tvo daga. Allt fullt af grenjandi smábörnum, brjóstagefandi mæðrum, stoltum feðrum og ringluðum ömmum og öfum sem vita ekki við hvaða barnabarn þau eiga að hjala næst.
Uppúr fimm leggst skötufnykur yfir hverfið. Amma neitar að nýta góða veðrið og elda skötuna úti á grilli. Henni finnst það ekki jólalegt. Alltaf sama smámunasemin hér.
Jólapakkafjallið heldur áfram að stækka. Það á eftir að taka einn stórann vaxtakipp í dag þegar stavangursbúarnir koma. Gunni bróðir spáir því að metið muni falla í ár. Það er líklegt. Húrra. Það góða við það er að gjafir til smábarna eru í raun gjafir til foreldranna. HúrraHúrra.
Jólakveðjur frá Elgveien 11, Egersund, Noregi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Er það ekki "Gunnar IV"?
Gleðileg jól til ykkar allra, íslendinga sem norðmanna frá okkur Rannveigu :)
Gleðileg jól kæru vinir -og takk fyrir kortið. Hún María vinkona mín er orðin aldeilis fullorðin! Maður bregður sér til Kína í smástund og hún breytist bara í ungling ;)
Takk fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða. Þið gerðuð gott ár enn betra...hlakka til góðra stunda 2007 :)
Jóla-LSH-kveðja,
Sigurveig
Skrifa ummæli