Jæja....jóhátíðin búin að ná hámarki sínu og fjarar nú út í rólegheitum. Ég er búinn að éta eins og svín undanfarna daga og hef nú í hyggju að snúa aftur að fyrri háttum með vogina á lofti. Verst er að sykurfíknin er vöknuð á ný. Hana þarf að bæla.Aðfangadagskvöld gekk vel fyrir sig í ár. Búið var að safna saman allri nánustu fjölskyldu á Elgveien 11 hjá Mömmu og Pabba. Fjölskyldan hefur stækkað um fjóra síðan á síðustu jólum. Sigbjörn og Hulda systir eru búin að vera saman í nákvæmlega eitt ár í dag, Gunnar jr fæddist í febrúar, María fæddist í september og Saga Dís nú í desember. Við erum því orðin 11 í allt:
Mamma og Pabbi
Bragi, Eygló og María
Hulda, Sigbjörn og Saga Dís
Gunnar, Hilde og Gunnar
Þegar allt þetta fólk kemur saman á jólunum myndast gríðarlegt magn af jólagjöfum, svo gríðarlegt að annað eins hefur ekki sést síðan jólasveinarnir hófu starfsemi sína i Esjunni.
María er búin að hafa það gott um jólin og við foreldrarnir líka.
1 ummæli:
Hvort er Bragi með eða án bindis? Bara nákvæmlega eins, sætir :)
Hafiði það gott um nýja árið!
p.s. Gæti það verið að eitthvað af jólagjöfunum mínum hafi ratað óvart þarna með ykkur til Noregs, átti von á grænni nag-kringlu.. ? Spurning?
Skrifa ummæli