
Okkur finnst kominn tími á að láta aðeins heyra frá okkur, svoldið langt síðan síðast. María dafnar vel, fór í 6 vikna skoðun í seinustu viku og var þá orðin 5,5 kg og 59cm og voru læknirinn og hjúkkan mjög ánægð með stelpuna. Hún dafnar svo vel að foreldrarnir verða að hafa sig alla við að nota öll fötin sem hún á, áður en þau verða of lítil.
Í gær þá fórum við mæðgur í mömmuhitting, þar voru samankomnar hjúkkurnar af hjartadeildinni. Það má með sanni segja að þetta sé frjósamur vinnustaður því börnin eru samtals orðin 12 á árinu og von er á tveim í viðbót á næstu dögum. Það var mjög gaman að hitta allar mömmurnar og börnin þeirra og það var auðvitað mikið fjör. Við gleymdum því miður myndavélinni heima og gátum því ekki tekið myndir af barnahópnum, gerum það bara næst..
María eignaðist lítinn frænda í morgun, Ingunn frænka átti strákinn sinn tveim vikum fyrir tímann. Við fáum vonandi að sjá hann sem fyrst, María er alla vega orðin mjög spennt yfir því að vera orðin stóra frænka ;)
Það eru komnar nýjar myndir af dömunni inn á myndasíðuna, þeir sem eru ekki ennþá komnir með lykilorð inn á síðuna endilega sendið okkur póst og við látum ykkur fá það :)
Bless í bili,
Eygló og María
2 ummæli:
Sælar mæðgur. Það var ótrúlega gaman að sjá ykkur í dag. Vildi að ég hefði tíma til að kíkja oftar á ykkur. Það gerist nefnilega svo mikið á stuttum tíma hjá svona litlum krílum. María er líka framúrskarandi skemmtileg :)
kv. Inga frænka
Elsku María!
Þú ert rosalega krúttleg, ég hlakka mikið til að sjá þig. Þú átt líka frábæra foreldra, sem þó eru soldið latir að blogga. Viltu skila því til þeirra.
Kær kveðja
Matta
Skrifa ummæli