10/02/2006

Mánaðargömul















Já í dag er hún María mánaðargömul, ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt!
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur Hábergsbúum.. Pabbi fór aftur að vinna, tveim vikum eftir að stelpan fæddist og erum við sammála um það að tvær vikur séu allt of stuttur tími svona fyrst( vitum það næst.. ) Amma og afi komu frá Noregi og voru hjá okkur í 10 daga, þá var sko gaman. María var farin að venja sig á að taka morgunlúr á bumbunni á afa sínum og saknar hún þess óskaplega mikið núna. En hún ætlar að athuga hvort hún fái ekki að lúra hjá honum þegar við komum til Noregs um jólin.
María var skírð laugardaginn 23. September, ákváðum við að drífa í því fyrst amma og afi voru á landinu. Athöfnin og veislan fór fram hjá ömmu og afa í Keilufellinu og voru nánustu ættingjar viðstaddir. Séra Bolli Pétur Bollason skírði dömuna og hélt amma Guðrún á henni. María var mjög stillt og prúð við athöfnina, lét aðeins vita af þvi að hún vildi dudduna sína og tók gleði sína á ný þegar hún fékk sínu fram. María sofnaði svo eftir athöfnina í skírnarkjólnum, sem er víst mjög mikilvægt samkvæmt ömmunum :) Þetta var mjög góður dagur.
María hefur verið dugleg að fara út að ganga með mömmu sinni undanfarna daga, enda ætlar hún að verða útivistargarpur eins og pabbi sinn :) Henni finnst hvergi betra að sofa en í vagninum og tekur lengstu lúrana sína þar.
Það nýjasta nýtt hjá Maríu er leikteppið sem hún fékk að gjöf um daginn, á því er spegill sem henni finnst gaman að horfa í og skoða sjálfa sig-þá er sko brosað og hjalað :)
Í gær skruppum við fjölskyldan út úr bænum og fórum í kaffi til Magga og Rannveigar í bústaðinn í Grímsnesinu, það var mjög notalegt og alveg æðislegt veður. Takk fyrir okkur!

Eygló og María

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með mánaðarafmæli litlu snúllunnar. Merkilegt að það sé strax kominn mánuður síðan hún kom í heiminn. Þetta var eftirminnilegur dagur :)

Ég verð að fara að losa mig við þetta leiðindakvef sem ég er með svo ég geti komið og knúsað músina. Alltof langt síðan ég hef séð hana, sérstaklega í því ljósi að hún hefur bara verið til í einn mánuð!

Inga frænka

Sverrir Sigmundarson sagði...

Til hamingju með litlu...Þú býður okkur bara í ferminguna :)

-Feiti

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með mánaðarafmælið prinsessunar, alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Ég verð síðan að fara að koma aftur í heimsókn:) Knús, Sirrý

Nafnlaus sagði...

Vá mánaðargömul Þetta líður hratt Áður en við vitum af þá verður hún farin að skrifa sjálf inná bloggið
Til hamingju með daginn frá öllum í ásgarðinum :)

Nafnlaus sagði...

Hugsa til ykkar og hlakka til að sjá frk. mánaðargömlu áður en hún verður frk. ársgömul. Þið eruð krúttlegasta fjölskyldan í Breiðholtinu..
Matta

Nafnlaus sagði...

Sjølv om me ikkje forstår noko av det dykk skriv her inne, vil me allikevel, gratulere med ei kjempefin dotter.

Nafnlaus sagði...

Fakorten ... kem slapp han derr normannen inn her.

Gunni litli bidur ad heilsa litlu snùllunni, er alltaf ad tala um hana, si bablandi bara sko!

Nafnlaus sagði...

Fakorten ... kem slapp han derr normannen inn her.

Gunni litli bidur ad heilsa litlu snùllunni, er alltaf ad tala um hana, si bablandi bara sko!

Nafnlaus sagði...

Fakorten ... kem slapp han derr normannen inn her.

Gunni litli bidur ad heilsa litlu snùllunni, er alltaf ad tala um hana, si bablandi bara sko!

Sverrir Sigmundarson sagði...

hva?.. bara ekkert gerst í 15 daga..

erfitt að vaka svona mikið þegar maður er kominn á eldri árin.. ha? Bragi?