
Þá er dagurinn runninn upp, það er að segja áætlaður fæðingardagur litlunnar. Hún virðist ekki ætla að koma í heiminn í dag, verður þá alla vega að vera mjög snögg að því ef hún ætlar að koma fyrir miðnætti. Var að lesa að líkurnar á því að fæðing fari af stað á morgun eru um10% og að fæðing fari af stað á næstu fjórum dögum er um 40% og 65% á næstu sjö dögum. Seinustu dagar eru búnir að vera svolítið skrítnir, við erum í rauninnni alltaf í viðbragðsstöðu um að eitthvað fari að gerast. En þessi tími sem maður getur búist við að fæðing fari af stað spannar mánuð þannig að það þýðir víst lítið að sitja bara heima og bíða. Við vitum alla vega að litla verður komin í heiminn í seinasta lagi eftir 2 vikur og vonum við að sjálfsögðu að hún fari að láta sjá sig sem fyrst því við erum orðin mjög spennt að fá hana.
Eygló
1 ummæli:
Verður spennandi að fylgjast með framhaldinu....
kk.,
Sigfús
Skrifa ummæli