María er orðin þriggja daga gömul. Hún er búin að vera heima í Háberginu í tvær nætur og allt gengur vel. María sefur mikið, eins og öll nýfædd börn en vaknar til að drekka hjá mömmu sinni af áfergju á rúmlega klukkutíma fresti að jafnaði. Yfir hánóttina er hún þó hvað hressust og sefur minna. Sem betur fer sofnar hún þó undir morgun og við foreldrarnir höfum fengið að sofa með henni frá um fimm á nóttunni til ellefu á morgnanna síðustu tvær nætur. Svefnleysið er því ekki alvarlegt.
Það er yndislegt að fylgjast með því hvað María dafnar hratt. Í dag bar meira á því að hún opnaði augun og skoðaði heimin í kringum sig . Við tvö áttum nokkrar frábærar stundir þar sem við horfðumst í augu í nokkrar mínútur, ég dáðist að fegurð hennar og hún furðaði sig á einkennilegu útliti mínu.
Lungun í Maríu er í góðu lagi. Eygló skrapp út í u.þ.b 10 mínútur í dag. Ég hélt það yrði nú lítið mál að vera einn heima með Maríu. Það liðu ekki nema tvær mínútur þar til hún áttaði sig á því að mamma var ekki heima. Það heyrðist vel að "Ó María mig langar heim" raulað falskri röddu svalar ekki neinni af frumþörfum þriggja daga gamallar dömu.
Gunni bróðir segir að það besta sem faðir getur gert fyrir börnin sín er að elska móðir þeirra. Ég tek mark á því og ætla að leggja mig fram við að sýna það í verki.
Mbk
Bragi
11 ummæli:
Þið eruð flottust í heimi. Innilega til hamingju. Mar verður að fara að koma og kíkja
Maggi
Til hamingju með dóttir ykkar, hún er algjör dúlla.Hlakka til að koma í heimsókn og sjá hana með mínum eigin augum:).Mér finns yndislegt að geta fylgst með ykkur og henni á þessari heimasíðu.
Kv.Dagmar
Innilega til lukku með dömuna! Hún er þvílíkt krútt.
Kveðja, Þórhildur vinkona Möttu.
Innilega til hamingju með Maríu litlu,
kveðja
Helga
Æi hvað þetta er fallegt sem þú skrifar :)
Gaman að fylgjast með ykkur :)
Kveðja,
Soffía
hlakka til að sjá prinsessuna á eftir
Ragga
Hlakka til að sjá hana á morgun :)
Sigurveig
Hlakka til að sjá hana á morgun...og ykkur auðvitað líka ;)
Sigurveig
Innilega til hamingju med nytt hlutverk i lifinu.
Kvedja fra Manchester
Til hamingju með litlu prinsessuna! Ekkert smá stór og myndarleg, verðum að kíkja á ykkur við fyrsta tækifæri :) en er möguleiki á að fá lykilorðið inn á myndsíðuna svo maður geti séð prinsessuna þanngað til :)?
Sverrir og Rannveig
Jiminn hvað hún er mikil snúlla hún María! :)
Enn og aftur til hamingju með hana!
Verð að fá að panta heimsókn við tækifæri..leiðó að komast ekki þarna um daginn..
Kveðja af kvöldvaktinni á 14G
Ebban :)
Skrifa ummæli