6/07/2008

Blómarós

Heil og sæl.

Það er kannski kominn tími til að húsbóndinn á heimilinu láti til sín taka á þessum vettvangi. Eins og margir vita hef skipti ég um vinnu fyrir um þrem mánuðum síðan. Ég lét af störfum hjá Hag- og upplýsingasviði Landspítalans eftir rétt rúmlega þriggja ára feril þar. Hóf störf sama dag hjá hugmbúnaðarhúsinu Teris. Teris sérhæfir sig í hugbúnaðarþróun og rekstri fyrir fjármálarfyrirtæki og er eitt að stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar á Íslandi. Þar starfa um 150 manns í dag en fyrirtækið hefur vaxið um meira en helming á síðastliðnum tveim árum. Ég á sæti í viðskiptagreindarhópi á þróunarsviði. Verkefni mín snúast að mestu um þróun gagnamóttökuferla frá kerfum utan og innan Teris. Töluverð breyting frá þeim verkefnum sem ég var í hjá LSH. Þetta er mun tæknilegra og gagnagrunnsvinna mun meiri. Spennandi tímar.

Blómarósin hér að ofan er í góðum fíling. Vex og dafnar og skessast áfram á fullum krafti. Fyrirferðin getur verið mikil ef þannig liggur á henni og svo er hún ljúf og góð þess á milli.

Bestu kveður úr Háberginu
Posted by Picasa

5/24/2008

Fyrsta leikhúsferðin

 


María fór með mömmu og pabba í leikhús í morgun. Það var rosa stuð, María var steinhissa á að sjá goðin sín svona í návígi. Hún sat fremst á dýnunni með öllum hinum krökkunum og fylgdist vel með öllu sem fór fram á sviðinu. Eftir sýninguna var svo myndataka með þeim Skoppu og Skrítlu. Hér á myndinni er María með Skoppu, María hljóp beint í fangið á henni :) Núna sefur María vært í vagninum enda þreytt eftir viðburðaríkan morgun.
Posted by Picasa

5/16/2008

Halló krakkar

Posted by Picasa


Nokkrar nýjar myndir komnar inn...

4/25/2008

Gleðilegt sumar!


Sælt veri fólkið og gleðilegt sumar!
Það eru meira en tveir mánuðir síðan við létum heyra í okkur seinast og því kannski kominn tími á færslu...
Við erum farin að hugsa til sumarsins sem nálgast óðfluga. Í júlí erum við búin að plana utanlandsferðir, undirrituð ætlar í smá húsmæðraorlof til DK og skella sér á Hróaskelduhátíðina í leiðinni ásamt Ingu vinkonu (og hver veit nema Sirrý og Eva komi líka). Bragi og María ætla sama dag að fara til Noregs og hitta fjölskylduna í Stavanger og Egersund og svo kemur húsmóðirin beint frá DK og verður með fjölskyldunni í Noregi í viku-ekki leiðinlegt plan það!

Svo er ýmislegt annað sem okkur langar að gera, eins og nokkra daga ganga á Íslandi-fer reyndar eftir því hvort við fáum pössun fyrir heimasætuna...Kemur í ljós. Svo eru einnig uppi hugmyndir um að fara á Borgarfjörð Eystri og sjá Damien Rice o.fl. spila í lok júlí.

Við fengum þær gleðifréttir fyrir nokkrum vikum að María er komin með pláss á leikskólanum Hraunborg (sem er við hliðina á okkur), hún fer reyndar ekki inn fyrr en í fyrsta lagi í haust, fer allt eftir því hvernig leikskólinn verður mannaður þá..Vonum bara það besta. Annars er hún alsæl hjá dagmömmunum í Vesturberginu, þar eru þau svo mikið úti að leika og María veit fátt betra en að vera úti. Þegar hún vil fara út þá heyrist í henni: "JÆJA" og þá er eins gott að bregðast fljótt við og klæða hana í útigallann því hún er ekki alveg sú þolinmóðasta á landinu og er með mjög stórt skap :)

Þessar myndir voru teknar núna á sumardaginn fyrsta í Heiðmörk og heima hjá ömmu og afa í Keilufellinu.

María fór upp á stall og hélt sýningu fyrir viðstadda, söng og dansaði öllum til mikillar skemmtunar :)

2/10/2008

Stóra frænka



María er hæst ánægð með Tómas frænda sinn, nýjasta nýtt hjá henni þessa dagana er að fara í mömmuleik með hann. Þessar myndir voru teknar af þeim hjá ömmu þeirra og afa fyrir u.þ.b. viku.


María reynir að lyfta Tómasi

1/02/2008

Í Háberginu...

...skúrum við með bros á vör (og hor í nös).

12/19/2007

Amma og afi komin í hús


Jæja, þá eru amma og afi í Egersund loksins komin til landsins. Það þótti jóladýrinu ekki leiðinlegt enda komu þau færandi gjafir og fínerí. Síðbúin afmælisgjöf var þar á meðal og má sjá jóladýrið hjálpa til við samsetninguna á myndinni hér að ofan.

Húsbóndinn skellti sér í ísklifur með Ísalp á dögunum. Gulli tok skemmtilegar myndir. Þar á meðal þessa

12/15/2007

Jólaandinn

Ég fékk nokkuð óvænta heimsókn rétt áðan, frá dóttur konu sem ég hjúkraði á hjartadeildinni fyrir u.þ.b. þremur árum þegar ég var nemi. Ég var meðal þeirra sem hjúkruðu henni seinustu vikurnar í lífi hennar. Í dag kom svo dóttir hennar færandi hendi, með pakka sem innihélt þetta fína gullhálsmen og var hún með því að uppfylla ósk móður sinnar sem vildi þakka mér fyrir umönnunina. Reyndar hafði hún hringt í mig á aðfangadag í fyrra og ætlað að koma með pakkann þá en við vorum stödd í Noregi og því gekk það ekki upp. Þannig að heimsóknin frestaðist um ár. Ótrúlega skemmtilegt og hlýlegt að fá svona þakklæti.




Þessi sæta hér fyrir ofan fór með mömmu og pabba að skoða jólatréið niðri á Austurvelli fyrir tveim vikum, þar voru fullt af jólasveinum en þeir voru nú ekkert sérstaklega spennandi að hennar mati, sýndi þeim litla sem enga athygli.
En hún hefur tekið mikinn þátt í því að skreyta heimilið og finnst henni jólaljósin alveg sérstaklega spennandi. Bendir mikið á þau og segir hina frægu setningu:" sjáðu!."

Einbeitt feðgin að horfa á jólasveinana.


En í dag er hún Saga Dís frænka eins árs. Til hamingju elsku frænka!

11/06/2007

Sumarbústaðaferð í Úthlíð


Við fjölskyldan heimsóttum Evu og Dengsa í sumarbústað í Úthlíð á laugardaginn var. Lagt var af stað seinnipartinn og komum við aftur heim daginn eftir. Þetta var stutt en góð ferð, borðuðum góðan mat, torguðum ársskammti af nammi, horfðum á video
(Bragi sofnaði fyrir kl.22),drukkum bjór og bara kósí. Maríu fannst mjög gaman, fór út að leika í snjógallanum sínum, dansaði upp á borði og mest spennandi af öllu var að leika í kojunni.

10/30/2007

María göngugarpur!


Já hún María okkar er byrjuð að ganga, hún tók upp á því fyrir rúmlega viku. Hún er mjög ánægð með þennan nýja hæfileika sinn sem veitir henni meira frelsi. Húrra fyrir Maríu :)

10/05/2007

Hlaupabólíus Maximus


Heil og sæl

Litla dýrið er búið að vera með hlaupabólu alla þessa viku. Hún hefur verið ótrúlega hress miðað við allt og allt, og er þessa stundina að háma í sig Fréttablað dagsins í dag. Næturnar hafa verið stífari en degirnir og lítið sofið í Háberginu. María er þó ekki örg á meðan hún vakir, en virðist ekki finna ró í kroppinn sinn, og æpir af lífs og sálar kröftum ef hún er skilin eftir ein í herberginu sín. Þetta þýðir að við Eygló höfum skipst á að standa vaktina.

Nú er bólan í rénum og allt á réttri leið. Það styttist vonandi í heillrar nætur svefn fyrir okkur. Vinnur okkar Eyglóar hafa aðeins fengið að líða fyrir þetta ástand, en það kemst vonandi allt í lag í næstu viku.

Annars er það helst í fréttum að húsbóndinn er á leið til USA um næstu helgi. Orlando nánar til tiltekið, á ráðstefnu Business Objects. Góð tilbreyting það. Verst að Glóa getur ekki komið með.

Hábergsbúarnir biðja að heilsa að sinni.

9/29/2007

Ágúst/September-fréttir

Halló halló!

Langt síðan seinasta færsla var skrifuð hér á bloggið, hef ákveðið að reyna að blása smá lífi í það og segja frá atburðum síðastliðinna vikna.



Þann 25. ágúst giftu Gunnar(bróðir húsbóndans) og Hilde sig með pomp og prakt í Noregi, nánar tiltekið í Etne heimabæ brúðarinnar. Þar var vel tekið á móti okkur og fengum við gistingu hjá foreldrum hennar. Þau giftu sig í mjög fallegri sveitakirkju og var veislan haldin í félagsheimili bæjarins. Veislugestir voru tæplega 100 og var nóg af kræsingum og skemmtiatriðum. Ferðin til Noregs var í styttra lagi, aðeins 4 nætur en engu að síður skemmtileg, gaman að hitta fjölskylduna sem maður sér alltof sjaldan. Því miður tókum við fáar myndir í þessari ferð því myndavélin var biluð...



2. September varð svo prinsessan á heimilinu 1.árs!
Ótrúlegt hvað tíminn líður þegar nóg er að gera og gaman :)
Að sjálfsögðu var haldin afmælisveisla til þess að fagna þessum merka áfanga. Buðum við fjölskyldu og vinum í súpu í hádeginu og kökur. Foreldrarnir fundu nú fyrir smá óöryggi í þessu öllu saman þar sem þau hafa aldrei áður haldið barnaafmæli, en þetta gekk nú allt stórslysalaust fyrir sig. Afmæliskakan var venjuleg kringlótt súkkulaðikaka skreitt með smarties, ákváðum að hafa hana bara einfalda þetta árið þar sem væntanlega verða gerðar meiri kröfur næstu árin-þá þarf maður að fara að æfa sig í að gera ponyhestaköku og barbieköku ;) María fékk að smakka köku í fyrsta skipti á afmælinu og líkaði henni vel.

22. september eignuðumst við lítinn frænda. Halli og Sara eignuðust stóran og flottan strák fyrir viku síðan. 17 merkur og 55cm. María er hæst ánægð með að hafa fengið tilvonandi leikfélaga í fjölskylduna :)
Við Bragi fórum í heimsókn til þeirra í dag og knúsuðum hann bak og fyrir. Hann er algjört æði! Ekki laust við eggjahljóð hér í Háberginu :)



Annars er það að frétta af okkur að Maríu gengur vel að aðlagast dvölinni hjá dagmömmunni/mömmunum. Fer beint að leika við krakkana þegar við komum með hana á morgnana en er alveg dauðþreytt þegar hún kemur heim seinnipartinn. Þurftum að setja hana í rúmið kl. 18 um daginn því hún var alveg búin á því greyið. Ég er svo byrjuð að vinna á heilsugæslunni og líkar mjög vel.

8/19/2007

Markmiðinu náð

Og gott betur. Flögutími 51:01, byssutímu 51:40. Næst fer ég á undir 50 mínútum.

Mbk
Bragi Freyr

8/17/2007

Hlaupihlaupihlaupi og það á nammidegi!

Siggi sæti úr Latabæ gerði sér það að umræðuefni að hlaupið væri á nammidegi. Gott og vel. 'Eg ætla að hlaupa, ekki með Sigga sæta heldur í 10 kílómetrahlaupinu.

Það er vænlegast til vinnings að birta markmiðið og auka þar með álagið á sjálfum mér. Ég stefni á 54 mínútur. Nái ég því bæti ég mig um tæpar sex mínútur frá því í fyrra.

Hana nú!

Bragi

8/11/2007

Hann á afmæli í dag


Hann á afmæli i dag, hann á afmæli hann Bragi, hann á afmæli í dag!
Já húsbóndi heimilisins á afmæli í dag og er hvorki meira né minna en 32 ára. Í tilefni dagsins verður kökuboð hér í Háberginu upp úr kl 16 og eru allir velkomnir, tilvalið að koma við upp í Breiðholt eftir gay pride gönguna :)
Við viljum líka senda Huldu frænku í Noregi (systur húsbóndans) innilegar hamingju óskir með 30 ára afmælið!