
Heil og sæl
Litla dýrið er búið að vera með hlaupabólu alla þessa viku. Hún hefur verið ótrúlega hress miðað við allt og allt, og er þessa stundina að háma í sig Fréttablað dagsins í dag. Næturnar hafa verið stífari en degirnir og lítið sofið í Háberginu. María er þó ekki örg á meðan hún vakir, en virðist ekki finna ró í kroppinn sinn, og æpir af lífs og sálar kröftum ef hún er skilin eftir ein í herberginu sín. Þetta þýðir að við Eygló höfum skipst á að standa vaktina.
Nú er bólan í rénum og allt á réttri leið. Það styttist vonandi í heillrar nætur svefn fyrir okkur. Vinnur okkar Eyglóar hafa aðeins fengið að líða fyrir þetta ástand, en það kemst vonandi allt í lag í næstu viku.
Annars er það helst í fréttum að húsbóndinn er á leið til USA um næstu helgi. Orlando nánar til tiltekið, á ráðstefnu Business Objects. Góð tilbreyting það. Verst að Glóa getur ekki komið með.
Hábergsbúarnir biðja að heilsa að sinni.
2 ummæli:
hæhæ sæta stóra frænka
Vonandi fer þér að batna :) Hlakka til að fá að sjá þig !
Kv. Vesturbergsbúar
hæ hó
Takk fyrir komuna á laugardaginn í afmælið hans Mikaels.
Var að skoða myndirnar þegar vinirnir fóru á róló, ekkert smá krúttlegt.
kveðja úr grafó
Ragga & co
Skrifa ummæli