
Sælt veri fólkið og gleðilegt sumar!
Það eru meira en tveir mánuðir síðan við létum heyra í okkur seinast og því kannski kominn tími á færslu...
Við erum farin að hugsa til sumarsins sem nálgast óðfluga. Í júlí erum við búin að plana utanlandsferðir, undirrituð ætlar í smá húsmæðraorlof til DK og skella sér á Hróaskelduhátíðina í leiðinni ásamt Ingu vinkonu (og hver veit nema Sirrý og Eva komi líka). Bragi og María ætla sama dag að fara til Noregs og hitta fjölskylduna í Stavanger og Egersund og svo kemur húsmóðirin beint frá DK og verður með fjölskyldunni í Noregi í viku-ekki leiðinlegt plan það!
Svo er ýmislegt annað sem okkur langar að gera, eins og nokkra daga ganga á Íslandi-fer reyndar eftir því hvort við fáum pössun fyrir heimasætuna...Kemur í ljós. Svo eru einnig uppi hugmyndir um að fara á Borgarfjörð Eystri og sjá Damien Rice o.fl. spila í lok júlí.
Við fengum þær gleðifréttir fyrir nokkrum vikum að María er komin með pláss á leikskólanum Hraunborg (sem er við hliðina á okkur), hún fer reyndar ekki inn fyrr en í fyrsta lagi í haust, fer allt eftir því hvernig leikskólinn verður mannaður þá..Vonum bara það besta. Annars er hún alsæl hjá dagmömmunum í Vesturberginu, þar eru þau svo mikið úti að leika og María veit fátt betra en að vera úti. Þegar hún vil fara út þá heyrist í henni: "JÆJA" og þá er eins gott að bregðast fljótt við og klæða hana í útigallann því hún er ekki alveg sú þolinmóðasta á landinu og er með mjög stórt skap :)
Þessar myndir voru teknar núna á sumardaginn fyrsta í Heiðmörk og heima hjá ömmu og afa í Keilufellinu.

María fór upp á stall og hélt sýningu fyrir viðstadda, söng og dansaði öllum til mikillar skemmtunar :)
2 ummæli:
Sæta skvísa :-)
Toppar foreldra sína í fríðleika ;)
Kveðja
Soffía
Hæ frænka! Ég hlakka alveg svakalega til ad leika vid thig i sumar. Ég kann ad dansa eins og Shakira... mamma min veit ekki alveg hvort hún sé svo hrifin af thví... en ég kann alla vega ad hrista bleiubossan rosa hratt :)) Saga Dís
Skrifa ummæli