12/15/2007

Jólaandinn

Ég fékk nokkuð óvænta heimsókn rétt áðan, frá dóttur konu sem ég hjúkraði á hjartadeildinni fyrir u.þ.b. þremur árum þegar ég var nemi. Ég var meðal þeirra sem hjúkruðu henni seinustu vikurnar í lífi hennar. Í dag kom svo dóttir hennar færandi hendi, með pakka sem innihélt þetta fína gullhálsmen og var hún með því að uppfylla ósk móður sinnar sem vildi þakka mér fyrir umönnunina. Reyndar hafði hún hringt í mig á aðfangadag í fyrra og ætlað að koma með pakkann þá en við vorum stödd í Noregi og því gekk það ekki upp. Þannig að heimsóknin frestaðist um ár. Ótrúlega skemmtilegt og hlýlegt að fá svona þakklæti.




Þessi sæta hér fyrir ofan fór með mömmu og pabba að skoða jólatréið niðri á Austurvelli fyrir tveim vikum, þar voru fullt af jólasveinum en þeir voru nú ekkert sérstaklega spennandi að hennar mati, sýndi þeim litla sem enga athygli.
En hún hefur tekið mikinn þátt í því að skreyta heimilið og finnst henni jólaljósin alveg sérstaklega spennandi. Bendir mikið á þau og segir hina frægu setningu:" sjáðu!."

Einbeitt feðgin að horfa á jólasveinana.


En í dag er hún Saga Dís frænka eins árs. Til hamingju elsku frænka!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega krúttlegur lítill jólasveinn sem þið hjónin eigið!
-gott að fá loksins nýtt blogg, var að kíkja í sjöhundruðasta skiptið -og varð ekki fyrir vonbrigðum :)

Nafnlaus sagði...

...og gaman að fá LOKSINS að vita hvað var í pakkanum frá konunni...:) Eygló þú ert OFURHJÚKKA (og varst meira að segja ekki nema nemi þarna!)