1/02/2008

Í Háberginu...

...skúrum við með bros á vör (og hor í nös).

12/19/2007

Amma og afi komin í hús


Jæja, þá eru amma og afi í Egersund loksins komin til landsins. Það þótti jóladýrinu ekki leiðinlegt enda komu þau færandi gjafir og fínerí. Síðbúin afmælisgjöf var þar á meðal og má sjá jóladýrið hjálpa til við samsetninguna á myndinni hér að ofan.

Húsbóndinn skellti sér í ísklifur með Ísalp á dögunum. Gulli tok skemmtilegar myndir. Þar á meðal þessa

12/15/2007

Jólaandinn

Ég fékk nokkuð óvænta heimsókn rétt áðan, frá dóttur konu sem ég hjúkraði á hjartadeildinni fyrir u.þ.b. þremur árum þegar ég var nemi. Ég var meðal þeirra sem hjúkruðu henni seinustu vikurnar í lífi hennar. Í dag kom svo dóttir hennar færandi hendi, með pakka sem innihélt þetta fína gullhálsmen og var hún með því að uppfylla ósk móður sinnar sem vildi þakka mér fyrir umönnunina. Reyndar hafði hún hringt í mig á aðfangadag í fyrra og ætlað að koma með pakkann þá en við vorum stödd í Noregi og því gekk það ekki upp. Þannig að heimsóknin frestaðist um ár. Ótrúlega skemmtilegt og hlýlegt að fá svona þakklæti.




Þessi sæta hér fyrir ofan fór með mömmu og pabba að skoða jólatréið niðri á Austurvelli fyrir tveim vikum, þar voru fullt af jólasveinum en þeir voru nú ekkert sérstaklega spennandi að hennar mati, sýndi þeim litla sem enga athygli.
En hún hefur tekið mikinn þátt í því að skreyta heimilið og finnst henni jólaljósin alveg sérstaklega spennandi. Bendir mikið á þau og segir hina frægu setningu:" sjáðu!."

Einbeitt feðgin að horfa á jólasveinana.


En í dag er hún Saga Dís frænka eins árs. Til hamingju elsku frænka!

11/06/2007

Sumarbústaðaferð í Úthlíð


Við fjölskyldan heimsóttum Evu og Dengsa í sumarbústað í Úthlíð á laugardaginn var. Lagt var af stað seinnipartinn og komum við aftur heim daginn eftir. Þetta var stutt en góð ferð, borðuðum góðan mat, torguðum ársskammti af nammi, horfðum á video
(Bragi sofnaði fyrir kl.22),drukkum bjór og bara kósí. Maríu fannst mjög gaman, fór út að leika í snjógallanum sínum, dansaði upp á borði og mest spennandi af öllu var að leika í kojunni.

10/30/2007

María göngugarpur!


Já hún María okkar er byrjuð að ganga, hún tók upp á því fyrir rúmlega viku. Hún er mjög ánægð með þennan nýja hæfileika sinn sem veitir henni meira frelsi. Húrra fyrir Maríu :)

10/05/2007

Hlaupabólíus Maximus


Heil og sæl

Litla dýrið er búið að vera með hlaupabólu alla þessa viku. Hún hefur verið ótrúlega hress miðað við allt og allt, og er þessa stundina að háma í sig Fréttablað dagsins í dag. Næturnar hafa verið stífari en degirnir og lítið sofið í Háberginu. María er þó ekki örg á meðan hún vakir, en virðist ekki finna ró í kroppinn sinn, og æpir af lífs og sálar kröftum ef hún er skilin eftir ein í herberginu sín. Þetta þýðir að við Eygló höfum skipst á að standa vaktina.

Nú er bólan í rénum og allt á réttri leið. Það styttist vonandi í heillrar nætur svefn fyrir okkur. Vinnur okkar Eyglóar hafa aðeins fengið að líða fyrir þetta ástand, en það kemst vonandi allt í lag í næstu viku.

Annars er það helst í fréttum að húsbóndinn er á leið til USA um næstu helgi. Orlando nánar til tiltekið, á ráðstefnu Business Objects. Góð tilbreyting það. Verst að Glóa getur ekki komið með.

Hábergsbúarnir biðja að heilsa að sinni.

9/29/2007

Ágúst/September-fréttir

Halló halló!

Langt síðan seinasta færsla var skrifuð hér á bloggið, hef ákveðið að reyna að blása smá lífi í það og segja frá atburðum síðastliðinna vikna.



Þann 25. ágúst giftu Gunnar(bróðir húsbóndans) og Hilde sig með pomp og prakt í Noregi, nánar tiltekið í Etne heimabæ brúðarinnar. Þar var vel tekið á móti okkur og fengum við gistingu hjá foreldrum hennar. Þau giftu sig í mjög fallegri sveitakirkju og var veislan haldin í félagsheimili bæjarins. Veislugestir voru tæplega 100 og var nóg af kræsingum og skemmtiatriðum. Ferðin til Noregs var í styttra lagi, aðeins 4 nætur en engu að síður skemmtileg, gaman að hitta fjölskylduna sem maður sér alltof sjaldan. Því miður tókum við fáar myndir í þessari ferð því myndavélin var biluð...



2. September varð svo prinsessan á heimilinu 1.árs!
Ótrúlegt hvað tíminn líður þegar nóg er að gera og gaman :)
Að sjálfsögðu var haldin afmælisveisla til þess að fagna þessum merka áfanga. Buðum við fjölskyldu og vinum í súpu í hádeginu og kökur. Foreldrarnir fundu nú fyrir smá óöryggi í þessu öllu saman þar sem þau hafa aldrei áður haldið barnaafmæli, en þetta gekk nú allt stórslysalaust fyrir sig. Afmæliskakan var venjuleg kringlótt súkkulaðikaka skreitt með smarties, ákváðum að hafa hana bara einfalda þetta árið þar sem væntanlega verða gerðar meiri kröfur næstu árin-þá þarf maður að fara að æfa sig í að gera ponyhestaköku og barbieköku ;) María fékk að smakka köku í fyrsta skipti á afmælinu og líkaði henni vel.

22. september eignuðumst við lítinn frænda. Halli og Sara eignuðust stóran og flottan strák fyrir viku síðan. 17 merkur og 55cm. María er hæst ánægð með að hafa fengið tilvonandi leikfélaga í fjölskylduna :)
Við Bragi fórum í heimsókn til þeirra í dag og knúsuðum hann bak og fyrir. Hann er algjört æði! Ekki laust við eggjahljóð hér í Háberginu :)



Annars er það að frétta af okkur að Maríu gengur vel að aðlagast dvölinni hjá dagmömmunni/mömmunum. Fer beint að leika við krakkana þegar við komum með hana á morgnana en er alveg dauðþreytt þegar hún kemur heim seinnipartinn. Þurftum að setja hana í rúmið kl. 18 um daginn því hún var alveg búin á því greyið. Ég er svo byrjuð að vinna á heilsugæslunni og líkar mjög vel.

8/19/2007

Markmiðinu náð

Og gott betur. Flögutími 51:01, byssutímu 51:40. Næst fer ég á undir 50 mínútum.

Mbk
Bragi Freyr

8/17/2007

Hlaupihlaupihlaupi og það á nammidegi!

Siggi sæti úr Latabæ gerði sér það að umræðuefni að hlaupið væri á nammidegi. Gott og vel. 'Eg ætla að hlaupa, ekki með Sigga sæta heldur í 10 kílómetrahlaupinu.

Það er vænlegast til vinnings að birta markmiðið og auka þar með álagið á sjálfum mér. Ég stefni á 54 mínútur. Nái ég því bæti ég mig um tæpar sex mínútur frá því í fyrra.

Hana nú!

Bragi

8/11/2007

Hann á afmæli í dag


Hann á afmæli i dag, hann á afmæli hann Bragi, hann á afmæli í dag!
Já húsbóndi heimilisins á afmæli í dag og er hvorki meira né minna en 32 ára. Í tilefni dagsins verður kökuboð hér í Háberginu upp úr kl 16 og eru allir velkomnir, tilvalið að koma við upp í Breiðholt eftir gay pride gönguna :)
Við viljum líka senda Huldu frænku í Noregi (systur húsbóndans) innilegar hamingju óskir með 30 ára afmælið!

8/08/2007

María er hjóladrottning

Sæl.

Við feðginin erum ein heima alla daga, til klukkan rúmlega fjögur, þar sem Eygló er byrjuð að vinna á heilsugæslustöðinni í Árbæ. Við erum rosalega hress alla daga. María vaknar á milli sex og sjö og dúllar sér með Eygló á meðan hún gerir sig klára fyrir vinnu. Svo skríð ég frammúr um hálf átta og gef drottningunni að borða og Eygló brunar af stað. Yfirleitt leikum við María okkur svo í smá stund, áður en hún leggur sig um níu, hálf tíu leitið.


Eftir að María vaknar förum við oftast út í göngutúr. Í dag fórum við reyndar í hjólatúr. María sat eins og ráðherra í aftanívagninum og ég puðaði. Hún er mjög hrifin af því að hjóla, svo við eigum örugglega eftir að gera meira af því. Það ringdi eldi og brennisteini á okkur í dag, en við erum svo miklir naglar að við látum slík smáatriði ekki stoppa okkur. Hjóluðum til ömmu og afa í Kópavogi, sem reyndust svo ekki vera heima. Við ákváðum því að hjóla niður í Fossvogsdalinn og þaðan til norðausturs upp í Elliðaárdalinn og lengri leiðinia heim. úr þessu varð um tveggja tíma volk.

Markmiðið er að gera sem mest af svonalögðuðu og með því ala Maríu upp sem "activity" meðvitaða manneskju, sem finnst eðlilegt að verja tíma sínum úti að hreyfa sig.

Kveðja

8/06/2007

Góðan dag pabbi!!!!

María Eyglóardóttir Bragadóttir tekur ekki í mál að sofa lengur.
Halló heimur!!!

8/01/2007

Júní-Júlí

Nú er kominn 1.ágúst og finnst mér kominn tími til að taka saman hvað við hábergsbúar höfum verið að bralla það sem af er sumri, reyndar gerðist húsbóndinn svo duglegur um daginn að segja frá útivistarbröltinu sínu en hér kemur smá viðbót.

23. júní létum við pússa okkur saman við hátíðlega athöfn í Saurbæjarrkirkju og var veislan haldin að Hlöðum. Þetta var alveg frábær dagur í alla staði og ekki skemmdi veðurblíðan fyrir :)
Látum myndirnar tala sínu máli




6629



















Í kringum brúðkaupið fengum við svo fullt af góðum gestum frá Noregi, fyrst mættu amma og afi frá Egersund á klakann og voru þau mikið að hljálpa til við brúðkaupsundirbúninginn sem var alveg ómetanlegt.

Næst komu svo Gunnar bróðir Braga, Hilde og Gunni litli og fengu þau það hlutverk að passa Maríu litlu á meðan undirbúningurinn stóð sem hæðst. Gunna og Maríu kom mjög vel saman og byrjuðu þau á þvi að fara í eltingaleik um stofuna, hann hlaupandi út um allt og hún skríðandi á eftir :)
Og síðast en ekki síst komu svo Hulda systir Braga, Sigbjörn og Saga Dís sæta. María kenndi Sögu Dís ýmsa ósiði eins og t.d. að hafa hátt og vera óþolinmóð þegar hún bíður eftir matnum sínum.





7/23/2007

Ævintýri á hálendinu

Heil og sæl

Húsbóndinn á heimilinu brá sér af bæ nýverið í fimm daga ferð um hálendi Íslands. Laki - Núpstaðarskógur var á dagskrá. Þriðjudaginn 18. júlí var ekið austurfyrir fjall í félagi við Álfgeir Loga tölfræðigúrú og doktorsnema með meiru. Stefnan var tekin á Lómagnúp um 30 km austan við Kirkjubæjarklaustur. Örstutt stopp var gert á Subway á Selfossi til að "hlaða". Þar rakst ég á góðvinkonu mína og selebritíið Soffíu Sveinsdóttur, efnafræðing og veðurspákonu. Gaman að rekast á hana, enda langt síðan síðast. Einkar sjarmerandi stúlka.

Að "hleðslu" lokinni var förinni haldið áfram austur á bóginn og látum ekki linnt fyrr en Runóinn staðnæmdist undir Lómagnúpnum. Þá voru þegar mætt á svæðið Markús og Björg og synir þeirra Arnar Gauti (Addi) og Guðmundur (Mummi) og jarfræðihjónin Bergur og Rannveig. Húsasmiðurinn Arnar átti svo eftir að bætast í hópinn síðar um kvöldið. Húsbóndinn dreif í að tjalda á iðagrænni flötinni sem Bergur og Rannveig höfðu valið fyrir næturstað. Fullkomið.

Árla næsta morgun risum við úr rekkju og gerðum okkur klár fyrir ferðina. Við áttum stefnumót við langferðabifreið frá Kynnisferðum við þjóðveginn. Þjónustulyndi og almennilegheit manna þar á bæ eru með eindæmum, enda fóru bæði þjónustufulltrúar og bílstjórar langt úr vegi sínum til að gera þessum níu manna hópi kleift að skipuleggja ferðina með þeim hætti sem hentugast þótti.

Dagur eitt á göngu
Um hádegisbil var komið að Laka og upp gengum við. Fallegt útsýni blasti við á alla kanta enda veður gott. Þá var haldið suðurfyrir Laka og svo sveigt í norðaustur og stefnan sett á Innri eyrar. Gengið var á svörtum sandi og apal og helluhrauni til skiptis. Háskýjað var og sæmilega hlýtt í veðri. Markmið dagsins var að ganga að Innri eyrum og stefna þaðan til austurs eins langt að Hverfisfljóti og auðið væri. Helst allt að bökkum fljótsins. Raunin varð sú að tjaldað var við austari jaðar eyranna í mjúkum mosabala við ferskann læk. Til greina kom að halda lengra, en sem betur fer ákvað undirritaður að áð skyldi á þessum stað þar sem ekkert heppilegt tjaldstæði reyndist innan margra kílómetra.

Dagur tvö á göngu

Dagur tvö var tekinn snemma, eða klukkan 0400. Óljóst var hversu langt væri í fyrstu kvísl Hverfisfljótsins og þótti öruugast að vakna snemma til að ná fljótinu sem næst lágmarki. Þetta átti eftir að hafa úrslitaáhrif á framvindu ferðarinnar. Gengið var af stað í austurátt undir sótsvörtum Síðujöklinum. Leiðin okkar lá í gegnum hraunilagt svæði, dauðís eftir Síðujökul, og þá yfir víðfema árfarvegi Hverfisfljótsins. Við höfðum einn GPS punkt til viðmiðunar um vað sem fenginn var hjá mönnum sem farið höfðu þessa leið fyrir fimm árum síðan. Þegar þeim punkti var náð stóðum við í skraufþurrum farvegi og fljótið ekki sjáanlegt svo langt sem augað eygði. Þetta kom okkur svo sem ekki á óvart, en þótti merkilegt að sjá hversu mikið fljótið hleypur til. Ferðalangar voru fegnir þegar fyrsta kvísl Hverfisfljótsins blasti við. klukkan var nú um 0600 og ekki seinna vænna að hefjast handa við að vaða. Fljótið nær lágmarki sínu um 0500 svo nærri jökli svo nú lá á. Það má segja að máltækið "að tefla á tæpasta vað" hafi öðlast merkingu í huga viðstaddra næsta klukkutímann eða tvo. Það er vandasamt að velja heppilega vaðstaði, en við miðuðum ávalt við að hafa fljótið sem breiðast og helst að eyrar eða hólmar stæðu uppúr sem oftast. Við óðum í þriggja manna "keðjum" og höfðum bakpoka að sjálfsögðu lausa á bakinu, ef illa skyldi fara. Búnaður var misjafn. Undirritaður óð í neopren sokkum innan undir gömlum hlaupaskóm og legghlífum. Sá búnaður reyndist afar vel. Þegar upp var staðið var fljótið um 700 metra breitt og á köflum svo djúpt og straumhart að tæplega var stætt. Svo fór reyndar að tvær keðjanna voru afar nærri því að falla og uppskar Rannveig skurð á legg og marið hné, og Álfgeir líklega brákaða vinstri hendi. Allt fór þetta vel að lokum og þegar síðasta keðjan brölti upp á bakkann handan síðustu kvíslarinnar beið mjúkur mosabali og bjart veður. Öll vorum við köld, skjálfandi og örmagna eftir viðureignina. Við gerðum góða pásu og reyndu allir að drekka heitt til að ná í sig hita. Á endanum skriðu flestir í svefnpokana til að verma sér. Gangan var viðburðarlítil eftir þetta. Að mestu gengið um dauðís og fátt um fína drætti hvað tjaldstæði varðar. Á endanum var tjaldað á sandi í góðu skjóli frá jöklinum í um kílómeters fjarlægð frá næsta verkefni, Djúpá. Ekkert ferskt vatn varð á vegi okkar þennan daginn, svo við gerðum okkur jökulvatn að góðu. Afbragðsgott. Þetta kvöld úðaði aðeins á okkur. Það stóð stutt yfir sem betur fer og morgunin eftir var allt orðið þurrt.

Dagur þrjú á göngu
Þriðji dagur ferðarinnar var tekinn snemma líka, eða klukkan 0430. Markmið dagsins var að sigrast á Djúpá og ná að næsta vaði þar á eftir, Vestari bergvatnsá við mynni Beinadals. Tveir möguleikar voru í boði. Hinn fyrri og "heppilegri" var að vaða Djúpá suð-austanundir Síðujökli. Tækist það yrði leiðin nokkuð greið til norðurs eftir Langaskeri og niður í Beinadalinn. Seinni kosturinn, sá sem oftast nær verður fyrir valinu var að ganga til norðurs, upp á Síðujökul og fylgja honum norður í kverkina við Hágöngur og vaða Djúpá þar. Á endanum varð sá kostur fyrir valinu þar sem Djúpá ber nafn með rentu. Við gengum upp á jökulinn á ægifögrum stað. Ein kvísl Djúpárinnar brýst undan jöklinum og hefur brotið hann þannig að jökulstálið er þverhnípt rétt við okkur. Fallegt stuðlaberg blasti einnig við ferðalöngum. Eftir um þriggja kílómetra göngu á fremur greiðfærum jökli þóttumst við sjá færi á að vaða ánna þar rétt fyrir ofan samruna tveggja kvísla töluvert sunnan við Hágöngur og Eldgíg. Ákveðið var að halda niður af jöklinum og reyna að vaða. Fyrri kvíslin reyndist nokkuð þægilegt vað, þótt úfin væri hún. Seinni kvíslin reyndist hins vegar alsendis ófær. Tilraunir okkar við hana voru það tímafrekar að ekki sú fyrri hafði vaxið úr hófi fram þegar við gáfumst upp. Það var því ekki fært aftur yfir þegar upp var staðið. Við stóðum því á eyri á milli tveggja beljandi jökulfljóta. Það var aðeins um eitt að ræða. Halda til norðurs eftir eyrinni og vona að árnar skærust ekki aftur og að við kæmumst norður undir Hágöngur til að vaða ánna þar. Fyrri kvíslin hvarf fljótlega undir jökulinn svo við gátum fylgt eyrinni áfram til norðurs. Þarna rákumst við á spor eftir hóp sem við vissum að var einum degi á undan okkur. Reyndar sáum við fleiri ummerki en spor. Það er skömm að því þegar ferðalangar á hálendinu geta ekki gengið frá eigin úrgangi þannig að hann blasi ekki við hverjum sem leið á hjá. Fussumsvei!. Í kverkinni við Hágöngur reyndis Djúpáin einfallt viðfangsefni. Eftir að hafa vaðið hana héldum við áleiðis til austurs. Við tjölduðum á frábærum stað skemur á leið en áætlað var, enda klukkan orðin margt og ferðalangar lúnir eftir langann og átakamikinn dag.

Dagur fjögur á göngu


Dagur fjögur hógst klukkan 0500. Á verkefnalista dagsins var að ganga Beinadalinn og vaða Vestari bergvatnsá (sem í raun er jökulá) og að minnsta kosti eina aðrennsliskvísl hennar. Auk þess átti að gera tilraun til að vinna upp um hálfa dagleið. Gangan reyndist fremur létt og umhverfið gjörbreytt frá deginum áður. Í stað grámyglulegs dauðíss og sótsvarts skriðjökuls vorum við nú í grænum, mosa og grasivöxnum dal með kyngimögnðum hrauntungum og litlum, en ægifögrum fossum. Hlýtt var í veðri og nýttu Addi og Mummi tækifærið til að baða sig í einum af fjölmörgu hylunum sem á vegi okkar urðu. Álfgeir og Bergur skoluðu einig af sér mesta skítinn í íslkaldri Bergvatnsánni. Við hin létum kyrrt liggja, enda annt um svitafýluna. Áfram gakk, út Beinadal og inn á Sléttur fyrir ofan Núpstaðarskóg. Þau okkar sem gengið höfðu Núpstaðarskóg - Skaftafell voru nú á kunnuglegum slóðum. Nú var heil dagleið eftir niður í Núpstaðarskóg og var dagurinn langt liðinn. Þrátt fyrir það settum við okkur það markmið að klára þá dagleið og gista á tjaldstæðinu í Núpstaðarskógi. Sú áætlun reyndist full djörf, enda hópurinn á fjórða degi og farinn að þreytast. Þar að auki villtumst við á röngm stað niður í Núpsárgljúfur og kostaði það okkur nokkurra klukkutíma brölt í bröttum skriðum til að komast út úr gljúfrinu. Þetta átti þó ekki eftir að koma að sök. Við fundum okkur tjaldstæði á mosabeði nálægt tærum og skoppandi læk. Allir sváfu vel eftir vel útilátinn kvöldverð.

Dagur fimm á göngu - lokadagur
Dagur fimm hófst klukkan 0530. Verkefni dagsins voru að síga niður í Núpstaðarskóg, og ganga út eyrarnar meðfram Lómagnúpi þangað sem við höfðu skilið bílana eftir við þjóðveginn. Markmiðið var að vaða Núpsvötnin á eyrunum ekki seinna en klukkan 10, áður en vatnavextir yrðu of miklir. Eftir um hálftíma göngu komum við að siginu, sem einhverjir höfðu kviðið töluvert fyrir. Undirritaður fór vandlega yfir aðferðarfræðina við sigið áður en tryggingum var komið fyrir. Bergur stóð vaktina á efribrún og aðstoðaði fólk við að koma sér fram af brúninni. Sigið gekk með eindæmum vel og voru allir komnir niður á innan við klukkutíma. Sólin skein í heiði og allir í góðu skapi. Eftir að hafa sigið var haldið í átt að tjaldstæðinu í Núpstaðarskógi. Þegar við vorum um það bil hálfnuð þangað göngum við fram á tvo bræður á tjaldferðalagi með fjölskyldur sínar. Þessir bræður reyndust hinir mestu öðlingar og samþykktu samstundis að skutla okkur í öðrum af tveim HELmassívum Econoline bílum sínum. Ferðalöngum og farangri var því troðið í bíl og ferjaðir niður á þjóðvegi á um hálftíma. Þetta sparaði okkur margra klukkustunda göngu og heilmikið vað. Þessir bræður, sem óljóst er hvað heita eiga þakklæti okkar ævinlega inni, en þeir harðneituðu að taka við greiðslu fyrir vikið.



Sem sagt, við vorum kominn á áfangastað, við bílana okkar, klukkan hálf tólf á sunnudagsmorgni. Sólin skín í heiði, við drulluskítug og ekkert framundan nema sundferð og hamborgaraát í Vík í Mýrdal.

Frábær, en mjög erfið ferð. Framúrskarandi ferðafélagar.

Bragi

6/14/2007

Sól og sumar


Síðastliðinn þriðjudag kom sumarið langþráða. Við fjölskyldan skelltum okkur niður í bæ og spókuðum okkur um í sólinni, sem var meira að segja fest á filmu af ljósmyndara Moggans, reyndar fékk Bragi ekki að vera með enda ekki alveg jafn gott myndefni og við mæðgur ;)

5/27/2007

Allt að gerast



Halló!
Núna er pabbi loksins kominn í fæðingarorlof og mamma farin aftur að vinna. Þetta eru svolítil viðbrigði fyrir okkur öll en engu að síður mjög góð tilbreyting. María og pabbi eru farin að hjóla út um allt, það var nefnilega keyptur glæsilegur hjólavagn fyrir prinsessuna og er hún mjög sátt við að láta draga sig um í honum og sofnar meira að segja í honum undantekningalaust :)


Sú stutta er farin að skríða út um allt og megum við foreldrarnir helst ekki líta af henni því hún er fljót að taka til hendinni. Hún er reyndar ekki byrjuð að skríða á hnjánum en dregur sig áfram með höndunum og spinnir í með tánum, en þessi aðferð virkar vel!




Gerber barnið :)


Með afa Tomma, ömmu Maju og ömmu Löbbu


Með nýju sundhettuna



Nú styttist óðum í brúðkaupið og því verður nóg að gera í undirbúningi fyrir það næstu 4 vikur. Við hlökkum alveg rosalega míkið til og er stefnan hjá okkur að gera gott partý :)