3/23/2007

Innleiðng

Vil tileinka þetta strákunum sem eru að skipta Novell út fyrir Microsoft í vinnunni. Ekki öfundsvert starf.

3/19/2007

Geðvondi granninn


Mamma og pabbi eru með mig í smá atferlismótun þessa dagana. Ég hef nefnilega átt við smá drykkjuvandamál að stríða að nóttu til. Hef verið dálítið mikið fyrir að vakna og heimta kósístund með mömmu. Því oftar því betra. Helst þrisvar!

Síðan á föstudaginn hefur mamma sofið í mínu herbergi (sem er orðið alveg tilbúið) og pabbi vaknar með mér og situr hjá mér og gefur mér vatn á milli þess sem ég skammast svolítið.

Nágrannakonan á efri hæðinni hefur verið eitthvað viðkvæm yfir þessu og lamið í gólfið ef hún heyrir og mikið í mér. Pabba var nóg boðið í nótt og í dag fór hann upp og bað konuna að sýna meiri þolinmæði. Hann reyndi líka að gefa henni eyrnatappa en hún þáði þá ekki. Sagðist eiga svoleiðis.

Annars er ég mikið í því að drekka vatn sjálf og borða graut um þessar mundir. Geri svolítið af því að sitja alein og svo fer ég ennþá í sund einu sinni í viku. Er orðin býsna lunkin í að kafa án þess að fara að skæla.

Á miðvikudaginn koma Hulda stóra frænka og Saga Dís litla frænka í heimsókn frá Noregi. Þær fá nýja herbergið mitt lánað. Það verður sko fjör þá. Eins gott að
nágrannakonan dusti rykið af eyrnatöppunum. Þegar frænkurnar eru farnar aftur til Noregs ætla ég að flytja í herbergið mitt. Hlakka mest til, en kvíð samt smá.

Í síðustu viku eignaðist ég litla frænku þegar Maggi og Rannveig eignuðust stelpu. Maggi frændi er búinn að segja að við megum koma í heimsókn í vikunni. Ég hlakka til og ætla að fara með mömmu og pabba að kaupa eitthvað fallegt handa henni sem fyrst.

Bið að heilsa
María

3/11/2007

María 6 mánaða


Já ótrúlegt en satt, María er orðin hálfs árs!
Tíminn hefur liðið alveg ótrúlega hratt... Nú er hún sko ekkert ungabarn lengur, komin með tvær tennur, farin að velta sér í allar áttir og gerir ítrekaðar tilraunir til þess að skríða. Í tilefni af 6 mánaða afmælinu í seinustu viku þá byrjuðum við að gefa henni graut og finnst henni það vægast sagt gott :) Helmingurinn af grautnum fer reyndar út um allt andlit en það er bara skemmtilegra. Svo er hún líka orðin mjög fær í listinni að drekka vatn úr stútkönnu og finnst það mikið sport.

2/19/2007

Vetrarferðamennska

Húsbóndinn skellti sér á námskeið í ferðamennsku að vetri til á vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Námskeiðið var hið fróðlegasta, þó nokkur skörun hafi verið við fyrri námskeið í ísklifri. Ég lærði allt um gerð trygginga í snjó, línuvinnu, leiðarval m.t.t. snjóflóðahættu, notkun snjóflóðaýla og gerð neyðarskýla í snjó svo eitthvað sé nefnt. Þá bauðst tækifæri til að gista í tjaldi að vetri til í fyrsta skipti. Ég greip það. Á myndinni hér að ofan er ég að undirbúa mig fyrir nóttina. Nóttin var ágæt, þó ég hafi vakað eitthvað sökum kulda. Helst var við dýnuna mína að sakast, en hún er helst til þunn fyrir svona aðstæður. Tjaldfélagi minn, Adolf, átti líklega erfiðari nótt, en hann var öllu verr búinn.

Nú er námskeiðahrinu lokið í bili. Héðan í frá verð ég sjálfbjarga á fjöllum.

2/17/2007

Tvær tennur komnar


Heil og sæl,
María litla er búin að vera lasin þessa vikuna en er öll að hressast núna , enda ætlar hún að vera klár fyrir Evróvision-kvöldið :)
Já daman er komin með hvorki meira né minna en tvær tennur í neðri góm, húrra! Ekki skrítið að hún sé búin að vera mjög örg undanfarið, klæjað rosalega í góminn og troðið öllu sem hún getur upp í munninn á sér...
Framfarirnar gerast hratt þessa dagana, hún getur næstum því setið óstudd-getur það í nokkrar sekúndur en þarf svo að hvíla sig inn á milli. Hún er ekkert lítið ánægð með sig þegar hún situr, enda foreldrarnir gott klapplið :)
Við mæðgur ætlum að horfa á Evróvision í kvöld, Bragi fór snemma í morgun á vetrarmennskunámskeið og kemur ekki fyrr en á morgun... Já hann er alveg kominn með delluna :) En við María notuðum bara tækifærið og buðum nokkrum stelpum að vera með okkur í kvöld, þannig að kvöldið lítur vel út. Við María ætlum að halda með Eika Hauks :)

2/02/2007

Ég er sunddrottning

Á hverjum laugardegi fer ég með mömmu og pabba í ungbarnasund í Breiðholtslaug. Lóló sundkennari er skemmtileg kona. Hún er búin að kenna mér að standa upp á endann og að stinga mér á bólakaf. Mamma og pabbi eru líka orðin flink í að hjálpa mér. Svo læri ég að tromma eins og indjánarnir í skóginum og syngja um andarungana og allskyns. Eftir hverja sundæfingu fæ ég að borða hjá mömmu og sef svo eins og rotaður selur í nokkra klukkutíma.

Nóg um það. Mamma er búin að setja nýjar myndir á internetið. Kíkið endilega á þær.

Mbk
María

1/30/2007

1/29/2007

Páskarnir

Jæja, það er ekki seinna vænna að skipuleggja páskafríið. Eftirfarandi hugmyndir hafa flogið í gegnum höfuðið á mér:

- Hvannadalshnjúkur m/skíði
- Hrútfellstindar
- Herðubreið
- Fjölskyldustemning í sumarbústað
- Kerlingafjöll m/skíði
- Eyjafjallajökull á skíðum
- Hvannadalshnjúkur (Svínafellsleið)
- Fimmvörðuháls
- Akureyri/Húsavík með fjölskyldunni
- Ísklifur á S-V horninu
- Heima að éta dorritos og horfa á vídjó

Verst að ég á ekki skíði, og ekki klifuraxir.

Bragi

1/23/2007

Júróvisjón

Forkeppnin er ömurleg.

Hér eru nokkur "higlights" Júrúvisjónsögunnar. "Húsin hafa augu" og hin lögin eiga ekki séns .


Ellefu ára gamall varð ég yfirmig ástfanginn af Söndru Kim. Dansinn hennar þótti mér ótrúlega töff. Skippið fyrstu 50 sek eða svo.


Hver man ekki eftir þessum hressu konum. Norðmenn eru enn að fagna sigrinum nú 22 árum síðar.


Skilgreining á "vonbrigði" er 16 sætið sem ICY flokkurinn hreppti með Gleðibankanum. Íslenska þjóðin leit svo á að þátttaka í keppninni væri formsatriði. Annað kom á daginn.


Johnny Logan heltók hjörtu íslenskra miðaldra húsmæðra árið 1987. Það fengu allir miðaldra eiginmenn að r*ða þetta kvöld.


Þessir hressu karlar komu sáu og sigruðu árið 2000. Fyrir vikið yfirgnæfði söngur fullra dana allar hljómsveitir á Hróarskeldu sama ár.


Ahhh...klassík


Síðan 1990. Eygló hélt MEST upp á Stjórnina þegar hún var yngri. Mér er sagt að hún og Sirrý vinkona hafi æft atriði....

Nóg komið

Helvítis hláka!

Það hlánar. Helvítis andskotans.

Leikurinn í gær var rosalegur. Fátt meira um það að segja. Sá reyndar ekki síðari hálfleik nema að litlu leiti. María var með "skemmtiatriði" og ég var hálfgerður klaufi.

Gunni litlifrændi og Saga Dís litlafrænka eru mikil krútt. Saga Dís líkist mömmu sinni meira og meira virðist vera. Ég vildi óska þess að þau byggju öll hér heima á Íslandi. Mér finnst við sjá allt of lítið af þeim. Það er þó áformað að frændsistkynin verji sem flestum sumrum saman þegar þau verða aðeins eldri. Það þýðir að þriðja hvert sumar verða þau hér á Íslandi. Það verður gaman.

María biður að heilsa. Hún er rosalega hress alla daga. Hlær og sér á læri slær.

1/19/2007

Bóndadagur að kveldi kominn

Heil og sæl

Nú er bóndadagur ársins 2007 að fjara út. Eygló var svo yndisleg að færa mér gjöf í tilefni dagsins. Splunku nýr Petzl fjallahjálmur, skjanna hvítur og óspjallaður liggur á borðstofuborðinu, reiðubúinn fyrir átökin á morgun.

Ísklifurnámskeið númer tvö klukkan 0730 í fyrramálið. Ísalp og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa fyrir framhaldsnámskeiði í ísklifri í nágrenni Reykjavíkur. Kemur í ljós á morgun hvar við verðum. Á námskránni eru klifur í ofanvað, uppsetning megintrygginga og v-þræðing, sig með öryggishnút og leiðsla undir eftirliti kennara. Myndin hér til vinstri er fengin að láni héðan.

María braggast hratt og örugglega. Hún er orðinn rúmlega átta kíló. Hún grípur í tærnar og veltir sér á magann eins og ekkert sé. Ungbarnasundið gengur eins og í sögu og er hún búin að læra að standa í lófanum á pabba sínum. Í síðasta tíma dembdi Lóló sundþjálfari henni á bólakaf í fyrsta skipti. María kippti sér ekki upp við það. Smjattaði bara á sundlaugarvatninu og glotti í annað.

Brúðkaupsundirbúninurinn flýgur áfram. Við bókuðum veisluþjónustu í gær. Verðum með grillstemningu og líf og fjör. Húrra!

Lifið heil, og í guðana bænum ekki sofa hjá Guðmundi i Byrginu.

1/14/2007

Brúðkaup næsta sumar


Jæja, brúðkaupsundirbúningur er loksins hafinn fyrir alvöru. 23. júní er dagurinn. Mér er sagt að það sé ekki seinna vænna að hefja undirbúning. Var að senda póst á haug af veisluþjónustum.

kokkarnir@kokkarnir.is
veisluhald@veisluhald.is
veislan@veislan.is
veislusalir@veislusalir.is

cocktail@cocktail.is
veislugardur@veislugardur.is
hereford@hereford.is
mensa@mensa.is
skutan@skutan.is
grillmeistarinn@grillmeistarinn.is
grillvagninn@grillvagninn.is
bhe@veislantin.is
veisluborg@veisluborg.is
mad@xnet.is

Ef einhver lesenda okkar hefur hugmynd/ir að skjóta að okkur baunið þeim endilega í athugasemdakerfið.

1/12/2007

Bon Jovi

Yessss....Bon Jovi er í sjóvarpinu. Verst að María er sofnuð og getur því ekki stutt mig. Eygló nuðar sífellt um að skipta um stöð.

1/10/2007

Heimsókn

Matta, ætlaðir þú ekki að koma að heimsækja mig einhverntíma?

1/09/2007

María er rokkari

Það rifjaðist allt í einu upp fyrir mér að á meðan María var að fæðast var þetta lag í útvarpinu á fæðingadeildinni.



María er rokkari frá blautu barnsbeini!