Á hverjum laugardegi fer ég með mömmu og pabba í ungbarnasund í Breiðholtslaug. Lóló sundkennari er skemmtileg kona. Hún er búin að kenna mér að standa upp á endann og að stinga mér á bólakaf. Mamma og pabbi eru líka orðin flink í að hjálpa mér. Svo læri ég að tromma eins og indjánarnir í skóginum og syngja um andarungana og allskyns. Eftir hverja sundæfingu fæ ég að borða hjá mömmu og sef svo eins og rotaður selur í nokkra klukkutíma.Nóg um það. Mamma er búin að setja nýjar myndir á internetið. Kíkið endilega á þær.
Mbk
María
3 ummæli:
Þú ert nú meira raþþþgatið María :)
Geturu gefið mér smá afleggjar af lærunum þínum fínu? Mamma segir að mín séu svo mjó!!!
Mikael Rafn
ánægður með gæjann í bakgrunninum. Þú ert með meira hár en pabbi þinn, þarf reyndar ekki mikið til.
Skrifa ummæli