Leikurinn í gær var rosalegur. Fátt meira um það að segja. Sá reyndar ekki síðari hálfleik nema að litlu leiti. María var með "skemmtiatriði" og ég var hálfgerður klaufi.
Gunni litlifrændi og Saga Dís litlafrænka eru mikil krútt. Saga Dís líkist mömmu sinni meira og meira virðist vera. Ég vildi óska þess að þau byggju öll hér heima á Íslandi. Mér finnst við sjá allt of lítið af þeim. Það er þó áformað að frændsistkynin verji sem flestum sumrum saman þegar þau verða aðeins eldri. Það þýðir að þriðja hvert sumar verða þau hér á Íslandi. Það verður gaman.María biður að heilsa. Hún er rosalega hress alla daga. Hlær og sér á læri slær.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli