Húsbóndinn skellti sér á námskeið í ferðamennsku að vetri til á vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Námskeiðið var hið fróðlegasta, þó nokkur skörun hafi verið við fyrri námskeið í ísklifri. Ég lærði allt um gerð trygginga í snjó, línuvinnu, leiðarval m.t.t. snjóflóðahættu, notkun snjóflóðaýla og gerð neyðarskýla í snjó svo eitthvað sé nefnt. Þá bauðst tækifæri til að gista í tjaldi að vetri til í fyrsta skipti. Ég greip það. Á myndinni hér að ofan er ég að undirbúa mig fyrir nóttina. Nóttin var ágæt, þó ég hafi vakað eitthvað sökum kulda. Helst var við dýnuna mína að sakast, en hún er helst til þunn fyrir svona aðstæður. Tjaldfélagi minn, Adolf, átti líklega erfiðari nótt, en hann var öllu verr búinn.Nú er námskeiðahrinu lokið í bili. Héðan í frá verð ég sjálfbjarga á fjöllum.
5 ummæli:
Hnuusss! Thad er kofi rett fyrir aftan, thetta er svindl!!!
Hmmm... kofi edur ei..Eg veit ekki hvort eg hefdi lagt i ad sofa uti i svona vedri. Siggi er hins vegar öfundsjukur :))
Úff þetta lítur svakalega út maður...en hefur pottþétt verið skemmtilegt!
Hvernig hljómar Esjuferð bráðlega?? Þú getur kannski kennt okkur sitthvað eftir þetta námskeið! haha :)
Kv. Ebba og Philli
p.s. Biðjum að heilsa Maríu skvísu og auðvitað Glóu sætu!
dåken må jo blogga meir.... me e jo heilt forvetne på ka dåken gjere på!!! Hilde
Er ekki komin timi til ad skrifa svolitid i blogginn sinn?
Skrifa ummæli