9/28/2010

8/15/2010

Nýjar sumarmyndir






Húsfreyjan í Háberginu er búin að setja nokkrar nýjar myndir í júlíalbúmið. Fleiri myndir eru svo væntanlegar á næstu dögum. við fjárfestum í nýrri heimilistölvu og það ætti því ekki að vera eins tímafrekt og áður að setja inn myndir. Annars er allt gott að frétta af okkur. Bragi og María voru í sumarfríi í 4 vikur og var þá ýmislegt skemmtilegt gert, við fórum t.d. í sumarbústað ömmu og afa, lékum okkur mikið úti í góða veðrinu, Bragi fór norður í nokkra daga göngu, María fór á tveggja vikna sundnámskeið og fannst það mjög gaman, hittum fullt af skemmtilegu fólki og grillið góða var mikið notað.
Guðrún litla er ekki svo lítil lengur, hún breytist með hverjum deginum. Hún er búin að uppgötva tásurnar sínar og reynir að grípa í þær og svo er hún byrjuð að reyna að velta sér.
kveðja úr Háberginu

7/06/2010

Tíminn líður



Nú er Guðrún orðin rúmlega 6 vikna gömul, ótrúlegt hvað tímanum líður. Hún dafnar mjög vel, er dugleg að drekka og sofa. Er farin að taka vel eftir umhverfinu og sparar ekki fallega brosið sitt. María er alltaf ánægðari og ánægðari með litlu systur sína og játar ást sína á henni reglulega, seinast í morgun sagðist hún ætla alltaf að eiga litlu systur sína :)

Guðrún var skírð þann 16.júní, áttum við alveg yndislegan dag/kvöld með nánustu fjölskyldu okkar. Amma Guðrún og afi Gunnar voru í stuttri heimsókn á landinu og notuðum við þá tækifærið og létum skíra dömuna. Veislan var haldin hjá ömmu og afa í Keilufellinu og var slegið upp grillveislu eftir athöfnina í sól og blíðu.
Er búin að setja inn fleiri myndir, bæði úr skírninni og frá júnímánuði.

6/03/2010

Nýr Hábergsbúi!



Sunnudaginn 23.maí kl.6:56 kom Guðrún okkar í heiminn. Hún var 15 merkur og 51cm. Hún lét ekki bíða lengi eftir sér, kom 7 tímum eftir settan fæðingardag. Fæðingin gekk eins og í sögu, komum upp á fæðingardeild kl.3:30 og hún er fædd 3,5 tímum síðar. Mamman missti reyndar um 2 lítra af blóði þannig að við þurftum að vera aðeins lengur á spítalanum, en vorum komin heim kvöldið eftir.
Guðrún litla dafnar vel, er mjög dugleg að drekka og sofa. Okkur finnst hún breytast með hverjum deginum og er alltaf að líkjast systur sinni meira og meira. Stóra systir er rosalega góð við Guðrúnu og spennt yfir þessu öllu saman. Stundum er samt svolítið erfitt að vera svona stór allt í einu og hefur hún sagst vilja vera lítil stelpa aftur :)
Er búin að setja inn fyrstu myndirnar, þær eru í albúminu sem merkt er Guðrúnu. Fleiri myndir koma svo á næstu dögum.

1/26/2010

Gleðilegt ár!

Það er allt gott að frétta hér úr Háberginu, það er ekki hægt að segja að við séum duglegir bloggarar... En við setjum alltaf inn myndir reglulega.
Var að setja inn fleiri myndir í desemberalbúmið.



9/02/2009

Afmælisstelpa





Þessi stelpa er sko þriggja ára í dag!

7/21/2009

Sumarstelpa


Hér er María á leiðinni niður í bæ á 17. júní :)

2/15/2009

Hábergsfréttir


Af okkur er allt gott að frétta. Seinustu helgi náði María þeim frábæra áfanga að standa í lappirnar, hún getur staðið upp sjálf núna ef hún hefur eitthvað til þess að styðja sig við og svo gengur hún með okkur ef við höldum í hendurnar á henni. Já það er kraftur í krúttinu okkar, við foreldrarnir erum að springa úr stolti.
Hún er byrjuð á leikskólanum allan daginn og finnst það æði, var auðvitað orðin hundleið á því að hanga heima og horfa á video. Hún er búin að fara í bíó tvisvar sinnum, fyrst með ömmu og mömmu á Skógarstríð og svo með ömmu og afa á Skoppu og Skrítlu, hún skemmti sér vel í bæði skiptin og gapti af undrun yfir stóra sjónvarpinu. Svo ætlum við fjölskyldan saman á Kardimommubæinn á morgun, held að mömmunni hlakki nú mest til :)
Annars er ég komin aftur í vinnu, byrjaði fyrir 2 vikum og gengur vel, hef verið að vinna fyrir hádegi og ætla svo að auka vinnuna jafnt og þétt næstu vikur, best að fara hægt af stað. En alveg ótrúlega gott að komast aftur í vinnuna og finna að ég ræð við það, flýtir klárlega batanum. Ég tók nú líka upp á því um daginn að skrá mig á norskunámskeið, hef lengi hugsað um það að það væri sniðugt þar sem við erum nú með annan fótinn þarna úti. Er hálfnuð með námskeiðið og hef gaman af þessu, sjáum til hvort ég brilleri í sumar í Norge ;)
Bragi hefur líka nóg að gera, vinnan og svo er hann búinn að vera aðstoðarþjálfari á Dale Carnegie námskeiði undanfarnar vikur.
Engin lognmolla í Háberginu.
Síðastliðinn fimmtudag, þann 12.03. kom ný frænka í heiminn :) Hulda og Sigbjörn eigunuðust sína aðra dóttur og hefur hún fengið nafnið Dilja Mey. Móður og barni heilsast vel, þau eiga víst að fara heim af fæðingardeildinni í dag. Okkur hlakkar mikið til að sjá mynd af henni og auðvitað að knúsa hana í sumar. Saga Dís frænka verður flott stóra systir!

2/07/2009

Öruggur staður


Hvað sem öðru líður veit ég alltént hvar fjarstýringin er.
Posted by Picasa

1/14/2009

Nýjar/gamlar myndir komnar inn


Setti inn myndir í myndaalbúmin sem teknar voru í nóvember. Set inn nýrri myndir á næstu dögum.
Annars allt gott að frétta.

1/11/2009

Dj Halli hani á námskeiði

 

Halli hani kom til Maríu á dj námskeið um daginn. Hér er hún að sýna honum nokkur múv á upptrektu spiladósina sem Amma Maja lánaði.

Annars erum við öll komin heim. Stelpunar útskrifuðust í dag. Ég og Tommi tengdó drösluðum sjúkrarúmi upp á í íbúðina okkar í Háberginu (get ekki beðið eftir að koma því niður aftur). María fékk far í sjúkrabíl og Eygló fékk að sitja í "nýja" bílnum í fyrsta sinn (húrra!).

Það er gott að við erum öll komin heim.

Kv Bragi

1/09/2009

Góð heimsókn og útskrift

 


Í dag fékk María heimsókn frá vinum sínum í slökkviliðinu. Tveir af sjúkraflutningamönnunum sem aðstoðuðu okkur á aðfangadagskvöld og um áramótin áttu leið um B5 og litu við í leiðinni. Maríu finnst mikið til sjúkrabíla ("sjúkkulaðibílar") og sjúkraflutningamanna koma og var mjög ánægð með heimsóknina.

Annars er það af okkur að frétta að stelpurnar útskrifast á sunnudag eða mánudag. Ég er búinn að redda hjólastól fyrir húsfreyjuna að leigu og við fáum lánað rúm undir heimasætuna hér á spítalanum. Amma Guðrún kemur svo í heimsókn frá Noregi og ætlar að vera au pair í þrjár vikur.

Annars verð ég aðstoðarmaður á Dale Carnegie námskeiði á mánudagskvöldum næstu 12 vikurnar. Nýtt challenge sem verður gaman að díla við.

En sem sagt, þá lítur út fyrir að við verðum komin heim frá og með sunnudeginum.

Kveðja Bragi
Posted by Picasa
Posted by Picasa

1/07/2009

Fréttir af B5



Hæ
Í dag fór húsbóndinn í verslunarleiðangur. Fjárfest var í nýrri myndavél þar sem sú gamla skemmdist í árekstrinum. Olympus Lumix TZ5 varð fyrir valinu. Meganæs "ot'ogskjóta" myndavél í betri kantinum. 

Annars eru ekkert sérstakar fréttir héðan af Borgarspítalanum. Það var tekin röntgenmynd af lærbrotunum hennar Maríu og það lítur út fyrir að hægra lærið grói mun hægar en það vinstra. Vinstra brotið er nánast gróið saman en hægra brotið er rétt farið að tolla. Þetta þýðir að við bíðum í viku eftir annarri myndatöku og getum í besta falli leyft okkur að vona að María losni úr strekknum eftir tvær vikur. Þetta voru að sjálfsögðu töluverð vonbrigði fyrir okkur.

Svona er lífið og maður verður að sætta sig við það. Við ætlum að gera það besta úr þessu og þökkum Guði fyrir að við erum á lífi og að það fer vel um okkur. María er verkjalaus og ber sig afar vel. Hún hlær mikið og leikur sér við pabba sinn. Nýjasta æðið er að "taka" nefið á pabba sínum og kasta því út á gólf. Það er mjöög fyndið. Það er þó ekki eins fyndið þegar pabbi tekur nefið af henni og kastar út á gólf. Ekki vel séð.

Margt fólk hefur komið í heimsókn og sýnt okkur stuðning í orði og á borði. Við erum gríðarlega þakklát fyrir það. Í dag kom Ragga vinkona Eyglóar meðal annarra í heimsókn. Húsbóndinn smellti einni mynd af henni á nýju myndavélina. Hún brosir fallega hún Ragga ;)




Posted by Picasa

12/20/2008

Myndbandsstubbur af Maríu á spítalanum

Smáfólkið lætur ekkert stoppa sig.



Mbk
Bragi

10/25/2008

Nýjar myndir komnar inn


Erum búin að setja inn nýjar myndir í albúmið hennar Maríu.
Annars er allt gott að frétta af okkur hér í Háberginu, María byrjaði á leikskóla fyrir tveim vikum og hefur aðlögunin gengið eins og í sögu.Við foreldrarnir hefðum kannski þurft lengri aðlögun, okkur fannst svolítið erfitt að skilja hana eftir í nýju umhverfi svona fyrst, finnst hún orðin svo stór stelpa allt í einu :)