6/03/2010

Nýr Hábergsbúi!



Sunnudaginn 23.maí kl.6:56 kom Guðrún okkar í heiminn. Hún var 15 merkur og 51cm. Hún lét ekki bíða lengi eftir sér, kom 7 tímum eftir settan fæðingardag. Fæðingin gekk eins og í sögu, komum upp á fæðingardeild kl.3:30 og hún er fædd 3,5 tímum síðar. Mamman missti reyndar um 2 lítra af blóði þannig að við þurftum að vera aðeins lengur á spítalanum, en vorum komin heim kvöldið eftir.
Guðrún litla dafnar vel, er mjög dugleg að drekka og sofa. Okkur finnst hún breytast með hverjum deginum og er alltaf að líkjast systur sinni meira og meira. Stóra systir er rosalega góð við Guðrúnu og spennt yfir þessu öllu saman. Stundum er samt svolítið erfitt að vera svona stór allt í einu og hefur hún sagst vilja vera lítil stelpa aftur :)
Er búin að setja inn fyrstu myndirnar, þær eru í albúminu sem merkt er Guðrúnu. Fleiri myndir koma svo á næstu dögum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Enn og aftur til hamingju með hana .. algjör snúllla :) Hlakka til að fá að sjá hana... kv. Sara Björk

Nafnlaus sagði...

Gullmolar sem þið eigið. Hlakka til að hitta litla stýrið í eigin persónu :)

Vonandi gengur allt glimrandi vel!

kv/Soffía