
Af okkur er allt gott að frétta. Seinustu helgi náði María þeim frábæra áfanga að standa í lappirnar, hún getur staðið upp sjálf núna ef hún hefur eitthvað til þess að styðja sig við og svo gengur hún með okkur ef við höldum í hendurnar á henni. Já það er kraftur í krúttinu okkar, við foreldrarnir erum að springa úr stolti.
Hún er byrjuð á leikskólanum allan daginn og finnst það æði, var auðvitað orðin hundleið á því að hanga heima og horfa á video. Hún er búin að fara í bíó tvisvar sinnum, fyrst með ömmu og mömmu á Skógarstríð og svo með ömmu og afa á Skoppu og Skrítlu, hún skemmti sér vel í bæði skiptin og gapti af undrun yfir stóra sjónvarpinu. Svo ætlum við fjölskyldan saman á Kardimommubæinn á morgun, held að mömmunni hlakki nú mest til :)
Annars er ég komin aftur í vinnu, byrjaði fyrir 2 vikum og gengur vel, hef verið að vinna fyrir hádegi og ætla svo að auka vinnuna jafnt og þétt næstu vikur, best að fara hægt af stað. En alveg ótrúlega gott að komast aftur í vinnuna og finna að ég ræð við það, flýtir klárlega batanum. Ég tók nú líka upp á því um daginn að skrá mig á norskunámskeið, hef lengi hugsað um það að það væri sniðugt þar sem við erum nú með annan fótinn þarna úti. Er hálfnuð með námskeiðið og hef gaman af þessu, sjáum til hvort ég brilleri í sumar í Norge ;)
Bragi hefur líka nóg að gera, vinnan og svo er hann búinn að vera aðstoðarþjálfari á Dale Carnegie námskeiði undanfarnar vikur.
Engin lognmolla í Háberginu.
Síðastliðinn fimmtudag, þann 12.03. kom ný frænka í heiminn :) Hulda og Sigbjörn eigunuðust sína aðra dóttur og hefur hún fengið nafnið Dilja Mey. Móður og barni heilsast vel, þau eiga víst að fara heim af fæðingardeildinni í dag. Okkur hlakkar mikið til að sjá mynd af henni og auðvitað að knúsa hana í sumar. Saga Dís frænka verður flott stóra systir!
4 ummæli:
Duglega María, hún verður farin á fullt í sumar skvísan.
Sjáumst
Ragga og Mikael Rafn
Gaman ad heyra gódar fréttir úr Hábergskotinu! :)
María er náttúrulega algjör skvís og mamman audvitad líka, hörkukellur alveg!! :)
Ég hef fulla trú á ad thú brillerir í norskunni Eygló!! :)
Risa kram frá Stokkhólmi, Eva Ósk.
Þið eruð ótrúlegar báðar tvær. Hef fulla trú á að þú brillerir í Norge í sumar :o)
Kv. Una
Frábærar fréttir af ykkur kæra fjölskylda! Ekkert smá duglegar mæðgur:) kær kveðja Signý Þóra
Skrifa ummæli