9/30/2006

Vafrafjör

Skilaboð frá Maríu til lesenda: "Notið Firefox!"

9/12/2006

Fyrstu dagarnir

Hæ allir!
Takk kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar, átti að skila sérstakri kveðju frá Maríu :)
Það er ekki hægt að segja annað en að það gangi allt vel hjá okkur hérna í Háberginu, við foreldrarnir erum að læra inn á Maríu og hún inn á okkur.
María fór í fyrsta baðið sitt um daginn og fannst það alveg frábært, var mjög róleg og góð en fannst ekkert gaman að fara upp úr-þá var sko látið heyra í sér...
Við erum búin að fara tvisvar sinnum með hana í heimsókn til ömmu Maju og afa Tomma og var það rosa stuð.
María er mjög tæknivædd ung dama og hefur spjallað við ömmu og afa í Noregi á skype nokkrum sinnum og finnst henni mjög gaman að láta þau dást að sér. Amma og afi eru svo væntanleg frá Noregi á fimmtudaginn, þá verður gaman :)
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, setjum sennilega inn fleiri myndir í dag fyrir áhugasama.
Eygló

9/04/2006

Þriggja daga gömul

Þetta er lífið...María er orðin þriggja daga gömul. Hún er búin að vera heima í Háberginu í tvær nætur og allt gengur vel. María sefur mikið, eins og öll nýfædd börn en vaknar til að drekka hjá mömmu sinni af áfergju á rúmlega klukkutíma fresti að jafnaði. Yfir hánóttina er hún þó hvað hressust og sefur minna. Sem betur fer sofnar hún þó undir morgun og við foreldrarnir höfum fengið að sofa með henni frá um fimm á nóttunni til ellefu á morgnanna síðustu tvær nætur. Svefnleysið er því ekki alvarlegt.

Það er yndislegt að fylgjast með því hvað María dafnar hratt. Í dag bar meira á því að hún opnaði augun og skoðaði heimin í kringum sig . Við tvö áttum nokkrar frábærar stundir þar sem við horfðumst í augu í nokkrar mínútur, ég dáðist að fegurð hennar og hún furðaði sig á einkennilegu útliti mínu.

Lungun í Maríu er í góðu lagi. Eygló skrapp út í u.þ.b 10 mínútur í dag. Ég hélt það yrði nú lítið mál að vera einn heima með Maríu. Það liðu ekki nema tvær mínútur þar til hún áttaði sig á því að mamma var ekki heima. Það heyrðist vel að "Ó María mig langar heim" raulað falskri röddu svalar ekki neinni af frumþörfum þriggja daga gamallar dömu.

Gunni bróðir segir að það besta sem faðir getur gert fyrir börnin sín er að elska móðir þeirra. Ég tek mark á því og ætla að leggja mig fram við að sýna það í verki.

Mbk
Bragi

9/02/2006

María er komin


María er komin í heiminn!. Klukkan 00:04 annan september kom María í heiminn í fremur stuttri fæðingu. Við mættum á fæðingadeild LSH klukkan 21:20. Tæpum þrem tímum síðar lá María við brjóst mömmu sinnar með pabba sinn háskælandi yfir sér.

Ég er hamingjusamasti maður í heimi, Eygló er fallegasta kona í heimi og María E. Bragadóttir er yndislegasta vera sem ég hef augum litið.

Mbk
Bragi

8/30/2006

Verðandi foreldrar

Þegar verðandi foreldrar eru orðnir leiðir á að bíða....

8/29/2006

Ein mynd segir meira en 1000 orð


Það var gaman að vera háskólanemi í HR. Ég þakka það að mestu yndislegum samnemendum mínum.

8/28/2006

Biðin


Svona líta menn sem bíða eftir sínu fyrsta barni út.

8/27/2006

27. ágúst!


Þá er dagurinn runninn upp, það er að segja áætlaður fæðingardagur litlunnar. Hún virðist ekki ætla að koma í heiminn í dag, verður þá alla vega að vera mjög snögg að því ef hún ætlar að koma fyrir miðnætti. Var að lesa að líkurnar á því að fæðing fari af stað á morgun eru um10% og að fæðing fari af stað á næstu fjórum dögum er um 40% og 65% á næstu sjö dögum. Seinustu dagar eru búnir að vera svolítið skrítnir, við erum í rauninnni alltaf í viðbragðsstöðu um að eitthvað fari að gerast. En þessi tími sem maður getur búist við að fæðing fari af stað spannar mánuð þannig að það þýðir víst lítið að sitja bara heima og bíða. Við vitum alla vega að litla verður komin í heiminn í seinasta lagi eftir 2 vikur og vonum við að sjálfsögðu að hún fari að láta sjá sig sem fyrst því við erum orðin mjög spennt að fá hana.
Eygló

8/25/2006

Kannisti við þessar?



Bíði

BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði
BíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíðiBíði

8/24/2006

Koma svo!

Nú má litla alveg fara að láta sjá sig. Ég er orðinn óþolinmóður.

Bragi

8/21/2006

Reykjavíkurmaraþon Glitnis - árangur


Það eru einhverjir búnir að rukka mig um árangurinn í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég hafði sett mér það markmið að hlaupa þessa 10 kílómetra á undir einni klukkustund. það er skemmst frá því að segja að markmiðið náðist eins og ofangreind mynd sýnir svo glögglega. Ég gerði eins og tíðkast hjá íslendingum t á alþjóðlegum mótum, stóð mig vel og lenti í 421. sæti. Setti þó ekki nýtt íslandsmet. Þetta hefði vart mátt tæpara standa hjá mér.

En, takmarkinu er náð og ég er sáttur.

Bragi

Metal-fucking-mania

Þetta er það almagnaðasta.



Bragi

8/18/2006

Reykjavíkurmaraþon Glitnis


Ég ætla að hlaupa 10 km á morgun. Stefni á að ljúka hlaupinu á undir einni klukkustund. Það væri bæting frá æfingum. Geri mér engar gríðarlegar vonir, enda ekki búinn að æfa nema í þrjár vikur. Gott að hafa eitthvað að stefna að samt. Frétti að íþróttaálfurinn verði á svæðinu. Spurning um að verða sér úti um eiginhandaráritun.

Bragi

8/14/2006

Brúðkaup að tæpu ári


Þar sem við Eygló ætlum að gifta okkur 23. júní á næsta ári er ég farinn að spá í þemu fyrir athöfnina og veisluna. Mér datt í hug að hafa Zombie þema, svipað því sem sjá má á myndinni hér að ofan. Ég er viss um að Eygló tekur hugmyndinni fagnandi.

8/11/2006

Afmæli

31 er ellefta prímtalan. Þar fyrir utan er 31 fjöldi ára frá því að ég fæddist. Flottur!

Bragi

8/10/2006

Árangursrík vending!

Jæja, mér skilst að það sé kominn tími á að ég bloggi þar sem þetta á nú að vera sameiginlegt blogg okkar Braga... Hef ekki alveg verið að standa mig í þeim efnum-en alla vega, betra seint en aldrei!

Nýjustu fréttir héðan úr Háberginu eru þær að við fórum niður á meðgöngudeild í morgun þar sem litlunni var vent/ snúið úr sitjandi stöðu í höfuðstöðu. Það tókst vonum framar, þurfti bara eina tilraun. Alveg mögnuð handtök hjá lækninum, þetta virtist nú ekki vera mikið mál fyrir hann. Hann tók þéttingsfast utan um litluna/bumbuna og bókstaflega sneri henni, svoldið vont fyrir mömmu en þetta voru ekki nema örfáar sekúndur. Pabbi hjálpaði svo lækninum samviskusamlega og lét sónartækið á bumbuna þegar læknirinn bað um.
Það kom okkur skemmtilega á óvart að þetta skildi takast, vorum í rauninni ekkert allt of vongóð um það, því við vorum búin að heyra að það væru ekki miklar líkur á því að þetta tækist.
Núna er bara að bíða og sjá og vona að hún snúi sér ekki aftur í sitjandi stöðu.

Núna er ég hætt að vinna og ætla að einbeita mér að því að gera allt klárt fyrir komu erfingjans, er nú þegar búin að setja í eina vél af barnafötum og svo verður allt straujað og gert fínt, spurning hvort þetta verði ekki í fyrsta og eina skiptið sem samfellurnar verða straujaðar-hef lúmskan grun um það, þar sem ég er ekki þekkt fyrir að vera dugleg við strauborðið. En sjáum til :)

Eygló

8/09/2006

Hugleiðingar verðandi föður


Við fórum í sónar í morgun. Þar með fékkst staðfest að litla er í sitjandi stöðu. Það verður gerð tilraun til að venda henni á morgun. Ef hún neitar að fara á haus verður tekin ákvörðun um framhaldið, hvort keisaraskurður er leiðin eða ekki. Það kemur í ljós á morgun.


Ég er lítið taugaveiklaður yfir þessu. Starfsfólk heilsugæslunnar í Reykjavík og Landspítalans, auk Eyglóar hafa sannfært mig um að það sé ekkert svakalegt stórmál þó litla vilji ekki standa á haus og kjósi frekar að sitja. Það gerist sem gerist. Ég get víst lítið gert til að breyta hlutunum. Best að treysta þeim sem meira vita.

Fari svo að keisaraskurður verði niðurstaðan er allt eins líklegt að litla komi í heiminn í næstu viku. Þá er eins gott að undirbúningi sé lokið. Ég er um þessar mundir að ljúka við að græja svefnherbergið okkar og lakka skúffustæðu undir barnafötin.

Þá tekur við barnaumönnunin og uppeldið. Ég hlakka mikið til að takast á við það verkefni, og geri mér ákveðnar hugmyndir að hverju beri að stefna í þeim efnum. Ég geri mér grein fyrir að á einhverjum stundum verður á brattann að sækja og við Eygló eigum eftir að þurfa að taka flóknar ákvarðanir í uppeldinu.

Hlutverk mitt sem föður er er mér ekki að fullu ljóst. Ég er ekki fullkomlega meðvitaður um stefnur, og stefnubreytingar leiðarinnar sem við erum að hefja ferðalag um.

Það er þó ýmislegt sem ég veit um hlutverk mitt. Ég veit að hlutverk mitt er að elska dóttur okkar takmarkalaust. Það er hlutverk mitt að vernda hana og veita henni alla þá umhyggju sem ég mögulega get. Það er hlutverk mitt að veita henni leiðsögn og segja nei á réttum stöðum og já sömuleiðis. Það er hlutverk mitt að vera sterk fyrirmynd og standa vörð um þau gildi og þá lífsýn sem ég trúi á og vil að dóttir okkar tileinki sér. Það er hlutverk mitt að umbera veikleika hennar og efla styrkleika. Það er hlutverk mitt að sýna þolinmæði. Það hlutverk mitt að veita athygli og að vera áhugasamur um það sem hún tekur sér fyrir hendur. Það er hlutverk mitt að veita huggun þegar illa gengur og gleðjast þegar vel gengur. Það er hlutverk mitt að láta hennar hagsmuni ganga fyrir mínum. Það er hlutverk mitt að standa sem klettur í lífi dóttur okkar, klettur sem veitir ávalt skjól og haggast ekki sama hvað á gengur.

Bragi

8/05/2006

Myndir frá Hvannadalshnjúki

Phillip Svenson félagi minn tók þessar myndir þegar við gengum á Hvannadalshnjúk í maí síðastliðnum.