8/10/2006

Árangursrík vending!

Jæja, mér skilst að það sé kominn tími á að ég bloggi þar sem þetta á nú að vera sameiginlegt blogg okkar Braga... Hef ekki alveg verið að standa mig í þeim efnum-en alla vega, betra seint en aldrei!

Nýjustu fréttir héðan úr Háberginu eru þær að við fórum niður á meðgöngudeild í morgun þar sem litlunni var vent/ snúið úr sitjandi stöðu í höfuðstöðu. Það tókst vonum framar, þurfti bara eina tilraun. Alveg mögnuð handtök hjá lækninum, þetta virtist nú ekki vera mikið mál fyrir hann. Hann tók þéttingsfast utan um litluna/bumbuna og bókstaflega sneri henni, svoldið vont fyrir mömmu en þetta voru ekki nema örfáar sekúndur. Pabbi hjálpaði svo lækninum samviskusamlega og lét sónartækið á bumbuna þegar læknirinn bað um.
Það kom okkur skemmtilega á óvart að þetta skildi takast, vorum í rauninni ekkert allt of vongóð um það, því við vorum búin að heyra að það væru ekki miklar líkur á því að þetta tækist.
Núna er bara að bíða og sjá og vona að hún snúi sér ekki aftur í sitjandi stöðu.

Núna er ég hætt að vinna og ætla að einbeita mér að því að gera allt klárt fyrir komu erfingjans, er nú þegar búin að setja í eina vél af barnafötum og svo verður allt straujað og gert fínt, spurning hvort þetta verði ekki í fyrsta og eina skiptið sem samfellurnar verða straujaðar-hef lúmskan grun um það, þar sem ég er ekki þekkt fyrir að vera dugleg við strauborðið. En sjáum til :)

Eygló

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

dugleg stelpa
Bragi

Nafnlaus sagði...

Veii! Ég var afskaplega ánægð þegar ég sá skilaboðin þín um vendinguna á msn í morgun, Eygló. Nú eru líkurnar mun betri á því að ég nái að sjá og fái að knúsa stóru fallegu bumbuna þína þegar ég kem heim :)

Hlakka til að sjá ykkur eftir nokkra daga!

Nafnlaus sagði...

Gaman að þú sért farin að blogga elsku krúsí músin mín:)

Knús, Sirrý

Nafnlaus sagði...

hmm já ég veit um fleiri sem straujuðu eins og brjálæðingar í þetta eina skiptið, hef lítið tekið upp straujárnið síðan.
Ragz