
Það hlaut að koma að því að mínir menn tækju þumalinn úr rassgatinu á sér og færu að skora mörk. 2-1 fyrir Viking á heimavelli gegn Ham Kam. Verðskuldaður sigur samkvæmt þessu hér.
Bragi

Þá er ég kominn heim í Elliðaárdalinn eftir fimm daga ferðalag um Hornstrandir norð-vestanverðar, frá Hornvík um Hlöðuvík, Fljótavík og Aðalvík að Hesteyri.
Hábergið á nýsprautuðum, helbreyttum Nissan Patrol. Allur farangur var þá löngu tilbúinn og óþolinmæði farin að gera vart við sig. Við ókum rakleiðis af stað og létum vart staðar numið fyrr en á tjaldstæðinu á Ísafirði þar sem fleiri ferðafélagar voru að gera sig klára fyrir átökin. Þrem bílum var komið fyrir á Bolungarvík til að ferja mannskapinn aftur til Ísafjarðar þegar til baka yrði komið. Við sváfum um nóttina við lækjarnið.

Mínir menn í norsku deildinni, Viking, ekki að standa með sóma. Eftir 12 leiki stöndum við uppi með 3 sigra, 5 jafntefli og 4 töp og í 10. sæti Tippeligaen, meistaradeild norðmanna. 
Svo eru það hvíldarstöðurnar, sem að mínu mati eru alger snilld. Þegar fyrirskipaðir æfingu er lokið er ekki staðið upp á annann endann og beðið eftir hinum. Þátttakendum er skipað í hvíldarstöðu: Armbeygjustaða, 90° "seta" við vegg, á bakinu með fætur fimm cm frá gólfi/jörðu eða olnbogi/tær. Allt eftir því sem best á við hverju sinni. Með þessum hætti nýtist tíminn fullkomlega og vöðvaþol bætist umtalsvert.
Ítalir tóku Þjóðverja í bakaríið í gær.
Eftir að við höfðum keyrt í land á Brjánslæk dóluðum við okkur um mínar gömlu heimaslóðir, Barðaströnd. Við skoðuðum Mórudal, minn fyrsta skóla á Birkimel, borðuðum á ströndinni, og heimsóttum Guðrúnu á Krossi sem passaði mig þegar ég var lítill. Þar vöknuðu margar góðar minningar. Eftir heimsóknina til Guðrúnar keyrðum við á Patreksfjörð með viðkomu hjá Kleifakarlinum. Við sofnuðum værum svefni á gistiheimilinu Eyri eftir að hafa farið í sund og út að borða. Ég mæli með sundlauginni á Patreksfirði. Hún er með því besta sem gerist á landinu.
Á föstudag varð að leysa úr bílavandræðum, en leki hafði komið á vatnskassann í Súkkunni daginn áður. Nokkuð fát kom á okkur, enda ekki ráðlegt að leggja í langferð um heiðar vestfjarða á biluðum bíl. Eftir að hafa þegið mörg misjöfn ráð frá hinum og þessum sérfræðingum og bifvélavirkjum var ákveðið að fara að ráðleggingum Tomma tengdó og hella vatnskassaþétti á vatnskassann. Tommi hafði rétt fyrir sér eins og endranær og kassinn hefur ekki lekið síðan, þrátt fyrir 1200 km akstur. Þegar bílavandræðin voru leyst keyrðum
við út á Látrabjarg, þar sem við tókum þessa fínu mynd af okkur saman. Fuglalífið við Látrabjarg er með ólíkindum og er sérstaklega skemmtilegt hvað lundinn er gæfur. Það er nánast hægt að snerta fuglinn þar sem hann situr á bjargbrúninni (ef maður hættir sér nógu nálægt brúninni). Eftir að hafa stoppað til að borða í Breiðuvík brunuðum við yfir á Rauðasand. Þar snerum við við á punktinum og stoppuðum ekki fyrr en á Bíldudal þar sem við gistum þriðju nóttina okkar á ferðalagi. Þar grilluðum við úti á svölum á gistiheimilinu okkar og mér tókst að hella upp á kaffi með nýja prímusnum mínum. Mikil gleði það.
Að morgni fjórða dags borðuðum við morgunmat á svölunum og keyrðum svo út í Selárdal þar sem listamaðurinn Samúel Jónsson hélt til þegar hann var á lífi. Þar hefur hann reist merkilega kirkju og íbúðarhús auk undarlegra listaverka sem athyglivert er að skoða. Þar á meðal þessa styttu af Leifi heppna sem sjá má í góðum félagsskap á myndinni hér til vinstri. Eftir að hafa skoðað Selárdal héldum við norður yfir Dynjandisheiði þar sem við stoppuðum meðal annars til að skoða Dynjandafoss, sem er ótrúlega fallegur. Eftir það, héldum við áfram til gegnum Ísafjörð, með viðkomu á Dýrafjarðardögum á Þingeyri alla leið til Hólmavíkur þar sem við áttum pantaða gistingu um nóttina. Við röltum um bæinn um kvöldið, en Hamingjudagar á Hólmavík, bæjarhátið hólmvíkinga stóð einmitt yfir þessa helgi. Við fórum þó frekar snemma að sofa með tappa í eyrunum, enda ball í næsta húsi við gistiheimilið. Sú var tíðin að maður hefði dúndrað á ball og djammað fram á rauða nótt, en eitthvað er farið að slá í okkur skötuhjúin sökum elli fyrir aldur fram, svo við létum það liggja á milli hluta.