Við lögðum af stað úr Reykjavík um hálf tólf á miðvikudagskvöldið síðasta og tókum stefnu á Stykkishólm. Við slógum upp tjaldi þar og kúrðum okkur niður í svefnpokana (ég í nýja dúnpokann sem ég keypti fyrr um daginn í í Nýju skátabúðinni) um tvö leitið eftir miðnætti. Um nóttina varð ljóst að ekki yrði gist í tjaldi aftur í þessari ferð. Það fer óléttum konum ekkert sérlega vel að teygja úr sinadrætti í litlu göngutjaldi.
Við vöknuðum klukkan hálf sjö á fimmtudagsmorgun við vekjaraklukkuna. Breiðafjarðarferjan Baldur leggur af stað klukkan níu að morgni alla daga. Við pökkuðum saman í rólegheitum og keyrðum um borð í ferjuna. Baldur er rúma tvo tíma að sigla yfir Breiðafjörðinn með stuttu stoppi í Flatey. Á leiðinni stálumst við til að borða nestið okkar í matsalnum, og horfðum svo á Forrest Gump í bíósal ferjunnar. Veðrið var yndislegt svo við stungum okkur upp á þilfar við Flatey. Eyjan er komin á lista yfir staði til að heimsækja í framtíðinni.
Eftir að við höfðum keyrt í land á Brjánslæk dóluðum við okkur um mínar gömlu heimaslóðir, Barðaströnd. Við skoðuðum Mórudal, minn fyrsta skóla á Birkimel, borðuðum á ströndinni, og heimsóttum Guðrúnu á Krossi sem passaði mig þegar ég var lítill. Þar vöknuðu margar góðar minningar. Eftir heimsóknina til Guðrúnar keyrðum við á Patreksfjörð með viðkomu hjá Kleifakarlinum. Við sofnuðum værum svefni á gistiheimilinu Eyri eftir að hafa farið í sund og út að borða. Ég mæli með sundlauginni á Patreksfirði. Hún er með því besta sem gerist á landinu.
Á föstudag varð að leysa úr bílavandræðum, en leki hafði komið á vatnskassann í Súkkunni daginn áður. Nokkuð fát kom á okkur, enda ekki ráðlegt að leggja í langferð um heiðar vestfjarða á biluðum bíl. Eftir að hafa þegið mörg misjöfn ráð frá hinum og þessum sérfræðingum og bifvélavirkjum var ákveðið að fara að ráðleggingum Tomma tengdó og hella vatnskassaþétti á vatnskassann. Tommi hafði rétt fyrir sér eins og endranær og kassinn hefur ekki lekið síðan, þrátt fyrir 1200 km akstur. Þegar bílavandræðin voru leyst keyrðum
við út á Látrabjarg, þar sem við tókum þessa fínu mynd af okkur saman. Fuglalífið við Látrabjarg er með ólíkindum og er sérstaklega skemmtilegt hvað lundinn er gæfur. Það er nánast hægt að snerta fuglinn þar sem hann situr á bjargbrúninni (ef maður hættir sér nógu nálægt brúninni). Eftir að hafa stoppað til að borða í Breiðuvík brunuðum við yfir á Rauðasand. Þar snerum við við á punktinum og stoppuðum ekki fyrr en á Bíldudal þar sem við gistum þriðju nóttina okkar á ferðalagi. Þar grilluðum við úti á svölum á gistiheimilinu okkar og mér tókst að hella upp á kaffi með nýja prímusnum mínum. Mikil gleði það.
Að morgni fjórða dags borðuðum við morgunmat á svölunum og keyrðum svo út í Selárdal þar sem listamaðurinn Samúel Jónsson hélt til þegar hann var á lífi. Þar hefur hann reist merkilega kirkju og íbúðarhús auk undarlegra listaverka sem athyglivert er að skoða. Þar á meðal þessa styttu af Leifi heppna sem sjá má í góðum félagsskap á myndinni hér til vinstri. Eftir að hafa skoðað Selárdal héldum við norður yfir Dynjandisheiði þar sem við stoppuðum meðal annars til að skoða Dynjandafoss, sem er ótrúlega fallegur. Eftir það, héldum við áfram til gegnum Ísafjörð, með viðkomu á Dýrafjarðardögum á Þingeyri alla leið til Hólmavíkur þar sem við áttum pantaða gistingu um nóttina. Við röltum um bæinn um kvöldið, en Hamingjudagar á Hólmavík, bæjarhátið hólmvíkinga stóð einmitt yfir þessa helgi. Við fórum þó frekar snemma að sofa með tappa í eyrunum, enda ball í næsta húsi við gistiheimilið. Sú var tíðin að maður hefði dúndrað á ball og djammað fram á rauða nótt, en eitthvað er farið að slá í okkur skötuhjúin sökum elli fyrir aldur fram, svo við létum það liggja á milli hluta.Fimmti dagur, heimferðardagur, reis. Við pökkuðum saman og keyrðum heim á leið, yfir Tröllatunguheiði sem er skemmtilegur "sjortkött" sem hægt er að fara ef maður er á sæmilega háum bíl.
það er óhætt að mæla með svona ródtrippi um Vestfirði. Passið bara að hafa nægann tíma fyrir stafni og ekki vera hrædd við að taka útúrdúra til að skoða allt það ótrúlega sem þetta svæði hefur upp á að bjóða.
Bragi
2 ummæli:
Þetta er svo frábært að hálfa væri nóg.Þið eruð akkurat að gera eitthvað sem mér dauðlangar til að gera sem fyrst:)Gaman að lesa þetta.kv.Dagmar
Við förum bara einhvern daginn í hópferð um vestfirðina Dagmar mín :)
Eygló
Skrifa ummæli