3/19/2007

Geðvondi granninn


Mamma og pabbi eru með mig í smá atferlismótun þessa dagana. Ég hef nefnilega átt við smá drykkjuvandamál að stríða að nóttu til. Hef verið dálítið mikið fyrir að vakna og heimta kósístund með mömmu. Því oftar því betra. Helst þrisvar!

Síðan á föstudaginn hefur mamma sofið í mínu herbergi (sem er orðið alveg tilbúið) og pabbi vaknar með mér og situr hjá mér og gefur mér vatn á milli þess sem ég skammast svolítið.

Nágrannakonan á efri hæðinni hefur verið eitthvað viðkvæm yfir þessu og lamið í gólfið ef hún heyrir og mikið í mér. Pabba var nóg boðið í nótt og í dag fór hann upp og bað konuna að sýna meiri þolinmæði. Hann reyndi líka að gefa henni eyrnatappa en hún þáði þá ekki. Sagðist eiga svoleiðis.

Annars er ég mikið í því að drekka vatn sjálf og borða graut um þessar mundir. Geri svolítið af því að sitja alein og svo fer ég ennþá í sund einu sinni í viku. Er orðin býsna lunkin í að kafa án þess að fara að skæla.

Á miðvikudaginn koma Hulda stóra frænka og Saga Dís litla frænka í heimsókn frá Noregi. Þær fá nýja herbergið mitt lánað. Það verður sko fjör þá. Eins gott að
nágrannakonan dusti rykið af eyrnatöppunum. Þegar frænkurnar eru farnar aftur til Noregs ætla ég að flytja í herbergið mitt. Hlakka mest til, en kvíð samt smá.

Í síðustu viku eignaðist ég litla frænku þegar Maggi og Rannveig eignuðust stelpu. Maggi frændi er búinn að segja að við megum koma í heimsókn í vikunni. Ég hlakka til og ætla að fara með mömmu og pabba að kaupa eitthvað fallegt handa henni sem fyrst.

Bið að heilsa
María

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vona að granninn sé orðinn spakari og María sé farin að gefa eftir í heimtingu á næturþjónustunni. Þá geta allir í blokkinni verið glaðir og vel útsofnir :)

Sé að heilsuátak húsbóndans er á blússandi siglingu... þetta verður ansi myndarlegt og stællegt par sem giftir sig 23. júní ef fram heldur sem horfir.

Nafnlaus sagði...

Gott hjá pabba að láta kellu á efri hæðinni svara til syndanna. Það verður gaman hjá ykkur litlu frænkunum í sumar þegar pabbarnir eru skálaverðir í sitthvorri víkinni fyrir austan:)

Maggi

Livet på Hålandsmarkå sagði...

Frændi segir: TURN IT UP - BRING THE NOISE.

Maria, ekki gefast upp, bara øskra meira, ekki hlusta å grannan eda pabba!